Áburðarverksmiðjan í Gufunesi
Föstudaginn 20. apríl 1990


     Ólafur Þ. Þórðarson:
    Herra forseti. Hér hefur það komið fram hjá einum af ræðumönnum, hv. 16. þm. Reykv., að tveir stjórnmálamenn á Íslandi hafi fleygt því á milli sín hvort ekki væri rétt að skuldajafna milli ríkisins og Reykjavíkurborgar með því að Reykjavíkurborg yfirtæki verksmiðjuna. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að Reykjavíkurborg verði gefinn kostur á að kaupa þessa verksmiðju á því verði sem hún er talin standa í, 2--3 milljörðum, og að sjálfsögðu hefði þá eigandinn rétt á því að gera við hana það sem honum sýndist.
    En mér finnst rétt að það komi hér fram að þetta er um margt ákaflega sérstæð umræða. Hv. 1. þm. Reykv. hefur þessa umræðu og aðalinntakið í hans ræðu var lygi í Morgunblaðinu, þ.e. að aðstandendur Nýs vettvangs hefðu komið grein inn í Morgunblaðið sem væri lygi. Nú er það svo fyrir flesta stjórnmálamenn á Íslandi að þeim bregður ekki þó að birt sé lygi í Morgunblaðinu. Mér finnst það alveg með ólíkindum að hæstv. forseti skuli telja það til stórfrétta þannig að af þeirri ástæðu verði að ræða þetta mál strax hér í dag. Ég skil satt best að segja ekki að það geti verið slík stórfrétt.
    En mér er ljóst að það loga eldar í þessu þjóðfélagi í dag. Það loga pólitískir eldar. Og hæstv. borgarstjóri Reykjavíkurborgar er í þeim vanda að hann finnur ekki fjandmenn sína í þeirri orustu sem er fyrir stafni. Ástæðan er sú að hann hefur löngum getað hrópað á Moskvu sem hið hræðilega afl sem þurfi að sameina þjóðina gegn en ( Gripið fram í: Og SÍS.) nú er svo komið að mjög hallar undan fæti hjá Moskvu --- og líka hjá SÍS, og þess vegna finnur hann ekki fjandmenn sína. Og menn hafa stillt upp kvenfólki í stórum stíl til höfuðs honum. Hann er kominn í þá aðstöðu að hann leitar eins og --- ja, ég ætla ekki að segja hvað, að þessum óvini sínum og telur að nú sé rétt að ráðast á ríkisstjórnina fyrir það að áburðarverksmiðja sé í Gufunesi. Það sé
eiginlega sá eini bitastæði andstæðingur sem hægt sé að hefja herför að og gleymir því í skáldlegum tilþrifum sínum að þessi verksmiðja var byggð fyrir Marshall-aðstoð, þ.e. bandarískt fé, kapítalistafé. Og þeir sem báru ábyrgð á því að hún var reist og hún stóð þarna, hverjir voru það? Mætustu foringjar úr hópi Sjálfstfl. sem uppi hafa verið að öllum öðrum ólöstuðum. ( ÞP: Og Vilhjálmur Þór.) Og Vilhjálmur Þór sem talinn var hafa mest fjármálavit af hálfu framsóknarmanna.
    Það er ekki skrýtið þó að upp sé komin merkileg staða. Hæstv. borgarstjóri verður þessa dagana að liggja yfir gömlum Þjóðviljagreinum til þess að finna rök fyrir sínu máli og hella þeim yfir landslýð á sama tíma og stuðningsmenn hans á Alþingi Íslendinga, sjálfstæðismenn, þurfa að halda uppi árásum og þá fyrst og fremst á þann forsrh., hlýtur að vera, sem ákvað að byggja nýjan geymi. Hv. 1. þm. Reykv. hefur stórskotahríð á hv. 1. þm. Suðurl. Það dugar ekkert minna. Það dugar sko ekkert minna, nú duga engar smábyssur á dýrið, kanónan á fullt. Hv. 1. þm.

Suðurl. virðist nefnilega hafa verið svo samviskulaus að hann hafi ætlað sér að hafa um aldur og ævi þá hættu yfir Reykvíkingum að þeir gætu allir drepist á nokkrum mínútum, hvorki meira né minna. Ef ekki eru komin rök fyrir því að setja hann af í Sjálfstfl., eftir að þetta er komið fram, þá veit ég ekki hvar ætti að fá þau. En kannski er það nú svo að hv. 1. þm. Suðurl. lét á sínum tíma aðeins stjórnast af vitsmunum og þekkingu hæfustu manna þegar hann ákvað að byggja nýjan geymi. Hann lét sem sagt vit ráða. Það ku ekki vera nógu gott nú á dögum. Nú þurfi tilfinningarnar að ráða. Og nýr foringi boðar það að Reykvíkingar verði aldrei óhultir meðan þessi verksmiðja stendur. Samt hefur hann í sinni borgarstjórnartíð lagt höfuðkapp á að byggja upp í kringum hana.
    Ég verð að segja eins og er að ég veit ekki hvort Slökkvilið Reykjavíkurborgar er fært um að slökkva þá elda sem hæstv. borgarstjóri hefur verið að kveikja að undanförnu. Þetta dugar hæstv. borgarstjóra ekki í kosningunum því að það hefur komið í ljós að allir flokkar ætla að styðja hann í þessu þannig að þetta verður ekki sérmál fyrir hann. Meira að segja forseti Alþingis ætlar að ganga fram fyrir fylkinguna. Nei, þetta dugar ekki í þeim efnum. En gerir hann sér grein fyrir því að með því að kveikja þennan hræðsluáróður þarf hann að svara mörgum spurningum öðrum? Hvernig ætlar Slökkvilið Reykjavíkur að bregðast við ef bensínflutningaskip sem kemur af hafi strandar í Skerjafirði, eldur kviknar og bensínið æðir upp að ströndinni og vindur er af hafi? Hvernig ætlar hann að slökkva? Hvað ætlar hann að gera undir slíkum kringumstæðum? Liggur það fyrir hjá Almannavörnum Reykjavíkur hvernig eigi að stoppa slíkan eld? Er hann að leggja til að allir olíutankarnir, sem hér eru staðsettir, verði fjarlægðir og öll olía verði flutt jafnóðum til borgarinnar? Þar er hætta á ferðum. Er það það sem menn eru að leggja til? Gasið, sem geymt er, það hlýtur náttúrlega að verða að fjarlægjast strax. Og hvað með stóra klórgeyminn við sundlaugarnar? Getur forsrh. baðað sig í heita pottinum af nægu öryggi í framtíðinni? Það er orðið álitamál ef hann færi nú til fjandans, potturinn. ( FrS: Eða þeir báðir.) ( ÞP: Eða þeir báðir, já.) Eða þeir báðir, já. Það var gleði í röddinni, bæði hjá 1. þm. Reykv. og 1. þm. Suðurl. þegar þeir bættu því við. ( Gripið fram í: En ræðumanni?) Það er gott ef menn sjá einhverjar bjartar hliðar á þessu líka. Hvað með flugvöllinn og hættuna sem honum fylgir? Nei, þetta er sko ekkert spaug.
    En hvar eru þá til þau mannslíf á Íslandi sem óhætt er að hafa í nágrenni við svona verksmiðju? Það er nefnilega það merkilega. Þau eru til í Húnaþingi. Þau mannslíf sem hægt er að fórna fyrir svona verksmiðju eru til í Húnaþingi. Staðfest bæði af 1. og 2. þm. Norðurl. v. Ekki veit ég hvort þeir eru það vel lesnir í Njálu að þeir viti það sem gamli maðurinn sagði forðum: ,,Guð er miskunnsamur. Hann mun oss eigi bæði láta brenna þessa heims og annars.`` Þess vegna telji þeir vísu menn og þingmenn

Norðurl. vestra allt í lagi að fá verksmiðjuna norður. Ef hún verði til þess að brenna einhverja með því þá sleppi þeir í það minnsta við helvítisvist á eftir.
    En ég held að það sé hárrétt hjá Davíð að það verður engin önnur verksmiðja byggð ef þessi verður rifin. Það held ég að sé hárrétt. Vegna þess, eins og hér hefur komið fram hjá hv. 10. þm. Reykv., að það er enginn rekstrargrundvöllur
fyrir nýrri verksmiðju sem framleiðir jafnlítið magn, það er enginn rekstrargrundvöllur.
    Ég verð að segja það að mér finnst það dálítið skrýtin staða hér í sölum Alþingis þegar ég upplifi það að hlusta á hv. 6. þm. Reykv. gerast talsmann skynsamlegrar yfirvegunar, rökréttrar hugsunar og þess að láta tilfinningarnar ekki hlaupa með sig í gönur, flytja hér afburða góða ræðu þannig að raunverulega þarf ekkert að segja meira um málið en þar kom fram. En svo falli hv. 1. þm. Reykv. í þá gryfju að ryðjast fram í kapphlaupinu við Egil á Seljavöllum, hv. þm. þeirra Austfirðinga, hv. 13. þm. Reykv. og hv. borgarstjóra, um að reyna að ná því sviðsljósi að þeir sem hræddastir hafa orðið hér í Reykjavík um páskana geti litið á sig sem lífgjafa sína. Það er ekkert smáræðis kapphlaup atarna. Nei, ég held að það hefði verið ákaflega hagstætt fyrir hv. 1. þm. Reykv. ef hann hefði orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að þessari umræðu hefði verið frestað fram yfir helgi því vafalaust hefði hann, sem var einn af ráðherrunum í ríkisstjórninni sem ákvað að byggja þennan geymi á sínum tíma sem nokkurn veginn er fullbyggður, í rólegri yfirvegun um helgina áttað sig á því að þetta mál er ekki þess eðlis að skynsamlegt væri að láta etja sér út í vitleysuna. Ég trúi því aldrei að það geti gerst, nema á mjög stuttu tímaskeiði, að reykvísk alþýða trúi því að á Alþingi Íslendinga séu annars vegar menn sem vilji drepa borgarbúa og sé alveg sama um hvort þeir séu lífs eða liðnir og hins vegar menn sem vilji bjarga borgarbúum. Ég þekki ekki einn einasta þingmann sem ekki vill Reykvíkingum allt hið besta. Og það er rosaleg málefnafátækt í umræðunni fyrir þessar borgarstjórnarkosningar ef menn ætla að láta þetta óhapp sem þarna varð, mannleg mistök, eins og hér hefur verið sagt, stjórna gerðum sínum í ákvarðanatöku upp á milljarða þegar það hefur jafnframt komið í ljós að þeir sem áttu, embætta sinna vegna, að bregðast við á hættustundu, eins og slökkviliðið, eins og lögreglan, eins og almannavarnanefnd, tóku allir rökréttar ákvarðanir og framkvæmdu það sem framkvæma þurfti og sönnuðu það að þeir geta séð við smá mannlegum mistökum á þessum stað.