Áburðarverksmiðjan í Gufunesi
Föstudaginn 20. apríl 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Enn þá eru tveir hv. þm. á mælendaskrá. Ég vil minna á beiðni mína hér fyrr í dag um að umræða þessi gæti tekið enda. Að vísu var beðið um að svo yrði miklu fyrr, en ég vil minna hv. þm. á að þessi mál koma væntanlega á dagskrá aftur í þinginu fyrir þinglok þannig að ég vil fara fram á það við hv. þm. að þeir stytti nú mjög mál sitt.