Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Ég minnti nú víst á það fyrr hér í dag að þessi umræða mundi líka fara fram á mánudaginn og ég skal svo sannarlega stytta mál mitt.
Í tilefni ræðu hv. 1. þm. Suðurl. sem hafði mjög miklar áhyggjur af afkomu Áburðarverksmiðjunnar og áburðarverði og lýsti því í löngu máli hve alvarleg þróun væri á ferðinni ef áburður yrði ekki hækkaður um 18%.
Nú er það svo að í kjarasamningum sem nýlega voru gerðir í mjög þröngri stöðu gaf ríkisstjórnin verkalýðshreyfingunni ákveðin loforð um hækkanir á margs konar opinberri þjónustu, þar á meðal sementi og áburði, ef ég man rétt. Það sem hv. 1. þm. Suðurl., formaður Sjálfstfl., gerði hér í ræðustól áðan, og launþegar landsins munu áreiðanlega taka eftir, er að hann beinlínis skoraði á ríkisstjórnina að svíkja þetta samkomulag sem hún hefur gert við launþegahreyfinguna. Það er ástæða til að vekja alveg sérstaka athygli á þessari framgöngu formanns Sjálfstfl. þegar hann kemur í ræðustól og manar ráðherra til að svíkja það samkomulag sem nýlega var gert við verkalýðshreyfinguna og er forsenda þeirra kjarasamninga sem nú eru í gildi. Þessu eiga menn að taka eftir og þessu munu launþegar áreiðanlega taka eftir. Ég vona sem stuðningsmaður þessarar ríkisstjórnar og veit, að hún mun láta þessi frýjunarorð hv. 1. þm. Suðurl., formanns Sjálfstfl., sem vind um eyru þjóta.