Halldór Blöndal:
Herra forseti. Hafi ég hagað orðum mínum svo að í þeim fólust einhver meiðandi ummæli í garð hv. 3. þm. Vestf. Karvels Pálmasonar, þá biðst ég afsökunar á því og tek þau orð ljúfmannlega til baka. Það var ekki meiningin. Kjarni þess sem ég var að segja var það að hv. þm. hafi farið vestur á firði og ekki getað setið fundi sjútvn. í dymbilviku. Ég hafði vakið athygli formanns nefndarinnar á því að enginn fulltrúi Alþfl. var á fundinum og óskaði eftir því að Alþfl. yrði gefinn kostur á því að eiga fulltrúa á fundum sjútvn. þó svo að hv. þm. hafi farið vestur.
Hv. þm. talaði um að þingflokksformaður Alþfl. hefði setið á fundum nefndarinnar í dymbilviku. Ég sagði það rangt. Ég hygg að hann hafi komið á einn fund nefndarinnar. Mér fannst þegar ég sagði þetta, og ég held að það sé rétt, að hann hafi ekki setið þann fund allan. Ég fullyrði að ég hafi mætt á fundum sjútvn. þegar ég hef getað, þarf ekki að taka fram, hélt ég, að tvær vikur fyrir jól var ég með inflúensu en þurfti að vísu að vera eitthvað á stjái, en ég hélt að það væri alveg viðtekin venja hér í þinginu að ef maður gengi ekki heill til skógar þó að hann væri ekki dauðveikur, slíkt væri ekki árásarefni í ræðustól í Ed. Hins vegar tók ég eftir því að samgn. hafði á þessum vikum t.d. sent frá sér frv. sem ég hefði gjarnan viljað koma að en við því er ekkert að segja. Deildin samþykkti frv. á meðan ég gat ekki sótt fundi hennar og við það verður að sitja.
Ég vil að þetta komi fram, herra forseti, um leið og ég fer viðurkenningarorðum um störf hv. 3. þm. Vestf., bæði hér í deildinni og í nefndum þingsins. Ég hef unnið þar með honum í mörg ár og hef með fáum jafnmikla ánægju af að vinna eins og einmitt hv. þm.