Þróunarsjóður lagmetisiðnaðarins
Laugardaginn 21. apríl 1990


     Karvel Pálmason:
    Virðulegur forseti. Menn eru auðvitað meiri að því að viðurkenna mistök. Ekki hóf ég þessa umræðu og ég skal ekki halda henni áfram í þeim dúr sem hér var upp hafið. Ég þakka hv. þm. fyrir það að lýsa slíkum geislabaug yfir mína samvinnu við hann í nefndum á þingi og menn gætu þá látið þetta niður falla. En ég ítreka það að ég upphóf ekki þessa umræðu, hún kom frá öðrum. En ég er alltaf reiðubúinn til að svara. Þeir sem byrja taka á sig að hinir hljóta að svara.