Lögheimili
Laugardaginn 21. apríl 1990


     Frsm. félmn. (Rannveig Guðmundsdóttir):
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 966, um frv. til laga um lögheimili, fyrir hönd félmn. Nefndin hefur fjallað um frv. og fékk á sinn fund til viðræðna um það Hallgrím Snorrason hagstofustjóra. Eftir að hafa rætt málið við hagstofustjóra og fengið svör við ýmsum spurningum um frv. voru nefndarmenn sammála um að mæla með samþykkt þess eins og Ed. afgreiddi það á þskj. 864.
    Undir þetta rita allir nefndarmenn.