Búnaðarmálasjóður
Laugardaginn 21. apríl 1990


     Friðrik Sophusson:
    Virðulegur forseti. Ég skal viðurkenna að ég hef ekki lesið það frv. sem hér liggur fyrir nægilega vel. Þó sé ég strax að hér er um að ræða mál sem hingað til og langoftast hefur verið talið eingöngu hagsmunamál bænda, enda snertir það fyrst og fremst Búnaðarmálasjóð. Ég tel þó, þegar svo áliðið er þings, að ef einhver hugmynd er uppi um það hjá hæstv. landbrh. að þetta mál fái afgreiðslu á þessu þingi þurfi að skoða það í samhengi við greiðsluflæði í landbúnaðinum. Ég held að það sé kominn tími til að fleiri en bændur líti á það hvernig því greiðsluflæði er háttað.
    Ég vil, án þess að ég sé að leggja dóm á þetta tiltekna frv. sem kann að vera mjög vel unnið og engan veginn get ég gert athugasemdir við störf þeirrar nefndar sem hefur unnið að gerð þessa frv., spyrja hæstv. ráðherra að því hvort farið hafi verið í gegnum sjóðakerfi landbúnaðarins með þeim hætti sem hann telur nauðsynlegt. Ég hygg að þar leynist ýmislegt það sem hefur komið landbúnaðarstarfseminni á kaldan klaka í mörgum tilvikum. Ég hygg t.d. að það hafi ekki verið hollt fyrir landbúnaðinn að lánað hafi verið með niðurgreiddum vöxtum út úr sumum sjóðum landbúnaðarins, með tilteknum skilyrðum um það að lánin færu til lögbýla, á meðan ljóst var að í vissum tilvikum gat verið hentugra fyrir landsbyggðina að fá viðkomandi starfsemi betur staðsetta. Er ég þá einkum að tala um loðdýraræktina sem allir vita hvernig farið hefur fyrir.
    Nú eru uppi hugmyndir um það í þjóðfélaginu að bændur þurfi að sækja rétt sinn, loðdýrabændur. Og ýmsir aðilar í þjóðfélaginu hafa talið að svo kunni að fara að einhverjir verði bótaskyldir vegna þess að sjóðirnir hafi lagt svo mikla áherslu á að bændur færu í loðdýrarækt. Eitt af því sem gert hefur verið í því sambandi er að fá menn til að breyta til með því að greiða niður vexti. Það var gert, að ég hygg, þegar
loðdýraræktin var sett á stofn og mönnum var ætlað að breyta til og setja á stofn loðdýrabú á lögbýlum, eins og það heitir. Ég hef nefnilega grun um að sjóðakerfið sé að ýmsu leyti landbúnaðinum fótakefli. Ég tel að það væri landbúnaðinum fyrir langbestu ef hann viðurkenndi markaðslögmálið meira en gert hefur verið og sniði starfsemi sína að því. Ég tel t.d. sjálfsagt að bændur og þeir sem stunda búskap á lögbýlum eigi að greiða sín framlög með sama hætti og annar atvinnurekstur og það eigi ekki að binda útlánin með þeim hætti sem stundum er gert.
    Nú get ég ekki, virðulegur forseti og hæstv. ráðherra, gagnrýnt einstök atriði í þessu lagafrv. En þar sem þetta mál er hér á dagskrá langar mig til þess að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann telji að með þessu frv. sé gengið nægilega langt í að endurskoða, og ég leyfi mér að segja að skera upp sjóðakerfi landbúnaðarins þannig að það svari til þeirrar þróunar sem við viljum sjá í landbúnaði á næstunni. Ég ætla ekki að nefna nein einstök atriði í þessu sambandi. Ég vil ekki heldur að orð mín séu skilin þannig að þetta

sé einhvers konar árás á landbúnaðinn. Ég tel að þvert á móti þurfi að finna leið til þess að styrkja landbúnaðinn hér á landi. Ég hef efasemdir um að það hafi verið gert með réttum hætti hingað til vegna þess að landbúnaðurinn stendur frammi fyrir því á næstunni að þurfa að vera samkeppnisfærari. Ég tel að það sama gildi um mál í landbúnaði og öllum öðrum atvinnugreinum, að með því að færa sig meira yfir í markaðslægari viðhorf, nær markaðslögmálinu, þá næst betri árangur. Ég þarf ekki að leita langt til þess að benda á ýmislegt máli mínu til sönnunar, til að mynda það sem hefur verið að gerast í löndunum í kringum okkur, það sem hefur verið að gerast í Austur-Evrópu og það sem er að gerast í viðræðunum hjá GATT. Allt ber þetta að sama brunni, að gera atvinnustarfsemina í öllum þessum löndum þannig að hún sé sem eðlilegust án opinberra áhrifa og án þess að of mikið sé gert af því að útjafna á milli manna. Fremur er verið að leita leiða til þess að auka samkeppnina, fá sem mest út úr þessum greinum og leyfa þeim sem standa sig vel að njóta ávaxta sinna verka.
    Nú kann það vel að vera að sá sé tilgangurinn með þeim tillöguflutningi sem hér er. Sé svo, þá er það gott. En ég vildi gjarnan fá að heyra álit hæstv. landbrh. á því hvort hann teldi að þetta frv. flokkaðist undir meiri háttar uppskurð á sjóðakerfi landbúnaðarins eða hvort hann teldi að það ætti að fara aðrar leiðir og þá hverjar.