Kvikmyndastofnun Íslands
Laugardaginn 21. apríl 1990


     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Herra forseti. Ég þakka fyrir þær umræður sem hér hafa farið fram um frv.
    Ég vil taka undir þessi orð hv. 18. þm. Reykv., ég tel að sjálfsagt sé að skoða allar athugasemdir í nefndinni með opnum huga, og víðsýni líka, en ég legg á það mikla áherslu að frv. verði að lögum á þessu þingi og ég held satt að segja að í nefndinni séu svo margir valinkunnir sæmdarmenn sem þekkja glöggt til þessa málaflokks að þeim ætti ekki að verða skotaskuld úr því að ná samkomulagi um málið og að því verði lokið.
    Ég vek athygli á því að fyrir þinginu liggja núna 14 frumvörp á vegum menntmrn. og ég tel að þetta frv. eigi að vera af okkar hálfu og það er af okkar hálfu, af hálfu ráðuneytisins og minni hálfu, mjög framarlega á þeim forgangslista, þannig að ég legg verulegt kapp á að niðurstaða náist í þessu máli.
    Um þær athugasemdir sem fram hafa komið vil ég segja þetta: Í fyrsta lagi er varðandi þær athugasemdir sem fram komu bæði hjá hv. 18. þm. Reykv. og hv. 2. þm. Reykv. um úthlutunarkerfið, að það sé flókið, það tengist hagsmunaaðilum stundum um of, eins og fram kom í máli hv. 2. þm. Reykv., því til að svara að að sjálfsögðu er nokkuð til í því. Og það að úthlutunarkerfið sé flókið, út af fyrir sig er nokkuð til í því líka. Vandinn er hins vegar sá að finna kerfi sem er hlutlægt, sem lokar eins og kostur er fyrir klíkuskap og þröng sjónarmið og að ákvarðanir séu byggðar á persónulegum tengslum. Það er afar erfitt að koma því við í þessu fámenna þjóðfélagi okkar. Ef menn eru með einhverjar aðrar og tvímælalaust betri aðferðir í þessu efni á auðvitað að skoða það, en ég legg á það mikla áherslu að það kerfi sem ákveðið verður í lögum sé þannig að hægt sé að treysta því, í grófum dráttum a.m.k., og það í sjálfu sér sé ekki þannig að það kalli á tortryggni í hvert einasta skipti sem úthlutað er fjármunum úr Kvikmyndasjóði. Ég veit að ekki er til neitt kerfi
sem algjörlega útilokar þetta, en mér er það mjög mikið kappsmál að þetta kerfi sé sem best úr garði gert í þessa veru. Þess vegna eru hér hugmyndir um þennan mikla hreyfanleika á stjórn og úthlutunarnefndum sem verkar flókið en er í raun og veru óhjákvæmileg forsenda þess að hægt sé í þessu fámenna þjóðfélagi kunningsskaparins að halda þannig á málum að einstakir aðilar fari ekki svo að segja að ráða lögum og lofum um kvikmyndagerð í þessum efnum.
    Að sjálfsögðu finnst mér að til greina komi t.d. að taka undir það sjónarmið hv. 18. þm. Reykv. að hliðstæð endurnýjunarákvæði eigi að setja inn í 4. gr. frv. um framkvæmdastjóra Kvikmyndastofnunar eins og t.d. er í frv. til útvarpslaga að menn séu ráðnir til takmarkaðs tíma og það sé heimild til að endurráða þá aftur en ekki nema kannski einu sinni eða í allra mesta lagi tvisvar.
    Okkar stóri vandi í þessum efnum er auðvitað sá að við erum hérna með lítinn markað. Við erum með

lítinn markað 250 þúsund manna þjóðar. Menn bera sig saman við Danmörku t.d. Þar er markaðurinn, bara markaðurinn einn út af fyrir sig, 20 sinnum stærri og þar af leiðandi er hætt við að mjög erfitt verði fyrir opinbera aðila að ná árangri á þessu sviði nema með mikið meiri fjármunum en ætla má að unnt sé að ná samstöðu um að veita til þessarar starfsemi hér á hv. Alþingi.
    Í frv. eru gerðar tilraunir til þess að ná mjög víða inn fjármunum með alveg nýjum hætti. Fyrir utan sjóðinn sjálfan, sem er veikur og hefur verið skertur, eins og hér kom fram, er hér gert ráð fyrir ábyrgðarheimildum og það er gert ráð fyrir skattafrádrætti og það er gert ráð fyrir að ríkissjóður yfirtaki reksturinn á Kvikmyndastofnuninni gagnstætt því sem nú er, að Kvikmyndasjóðurinn stendur undir rekstrinum á sjálfum sér sem er auðvitað fullkomlega óeðlilegt kerfi. Þess vegna er það í raun og veru þannig að í frv. er vísað í mjög margar áttir til þess að reyna að efla og treysta fjárhagslega undirstöðu íslenskrar kvikmyndagerðar og reyna að vega þannig upp þá staðreynd að markaðurinn er veikur, markaðurinn er lítill, og þar af leiðandi búa okkar kvikmyndagerðarmenn við mikið þrengri markaðsforsendur en kvikmyndagerðarmenn í grannlöndunum.
    Á það má hins vegar benda að við höfum á árunum 1989 og 1990 tekið ákvarðanir um að íslensk kvikmyndagerð eigi aðild bæði að evrópska kvikmyndasjóðnum og norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðnum. Á það er bent í grg. fjárlagafrv. eins og hv. 2. þm. Reykv. nefndi hér áðan. Það er ekki gert til þess að segja sem svo: Ja, þar með erum við laus allra mála, heldur er þetta veruleiki, að við erum að ná þarna vonandi dálítilli viðbót við möguleika okkar kvikmyndagerðar til að ná sér í fjármuni og ég held að þeir sem eru unnendur íslenskrar kvikmyndagerðar, eins og þeir hv. þm. sem hér hafa talað, hljóti að gera sér ljóst að eftir því sem við förum víðar að sækja fjármuni, eftir því sem við leitum víðar fanga, hvort sem það er sjóður, breyting á skattafrádrætti, erlendir sjóðir, ábyrgðir eða hvað það nú er, eftir því eru meiri möguleikar á því að við náum árangri. Gallinn við þessi mál hefur verið sá að þau hafa einvörðungu hangið á Kvikmyndasjóðnum sem
slíkum og framlögum til hans. Með þessu frv. og fleiri ákvörðunum sem teknar hafa verið er verið að leita miklu víðar fanga en verið hefur.
    Hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson spurði að því hvernig ég sæi fyrir mér ábyrgðarákvæðið í 8. gr. gagnvart bönkum. Ég er út af fyrir sig alveg sannfærður um að þetta ákvæði stenst gagnvart bönkum. Hins vegar má segja að það sé þeim í sjálfsvald sett miðað við núgildandi bankalög hvaða ábyrgðir þeir taka gildar. En ég hygg að það sé þó alveg ótvírætt að þeir muni taka þessa ábyrgð gilda ekki síður en fasteignaveð og að bankarnir muni ekki, hafandi ábyrgð af þessu tagi, gera kröfur um það að menn leggi á sama hátt og verið hefur íbúðir sínar

undir við framleiðslu á kvikmyndum, eins og við þekkjum mörg afar sorgleg dæmi um frá undanförnum árum. En þá spyr hv. þm.: En ef ábyrgðin fellur á sjóðinn, hvað þá?
    Ég vek athygli á því að Kvikmyndasjóður er A-hluta stofnun og hlýtur auðvitað að verða farið með skuldbindingar hans eins og aðrar skuldbindingar A-hluta stofnana. Ég held þess vegna að mjög mikilvægt sé að halda þessu ákvæði þarna inni og að menn geri sér grein fyrir því að hér er auðvitað í fyrsta lagi Kvikmyndasjóður skráður sem ábyrgðaraðili, en hver er ábyrgðaraðili Kvikmyndasjóðs? --- Það er ríkissjóður.
    Varðandi aðra athugasemd hv. þm. Birgis Ísl. Gunnarssonar um ríkisbókhaldið þá er ég algjörlega sammála honum um það að ég tel að þetta orðalag í fyrri málsl. 9. gr. sé á misskilningi byggt, hér eigi að standa Ríkisendurskoðun, enda eru ákvæðin í 8. og 9. gr. í raun og veru sniðin að gildandi lögum um Ríkisendurskoðun.
    Kem ég þá að nokkrum atriðum sem fram komu í máli hv. 18. þm. Reykv. varðandi sérstaklega 8. og 9. gr. þar sem hún taldi að um væri að ræða óeðlilegt orðalag eða ,,niðurlægjandi`` eins og þingmaðurinn komst að orði. Í fyrsta lagi sagði hv. þm. að orðalagið ,,skal stjórnin þá kynna sér fjárhag fyrirtækisins eftir föngum`` væri óeðlilegt og sagði sem svo, þetta ákvæði á heima í reglugerð og þess vegna er óeðlilegt og óþarfi að hafa það í lögunum. Mín skoðun er sú að það sé ekki óþarfi. Það er ekki hægt að setja svona ákvæði í reglugerð öðruvísi en það eigi lagastoð, þá hef ég misskilið hv. þm. ef hún hefur komist öðruvísi að orði, en ég rökstyð mína skoðun með því að þetta þurfi að vera í lögum til þess að stjórnin geri þetta. Hér stendur ,,eftir föngum``. Hér er ekki verið að tala um neitt annað en það að stjórnin hafi yfirlit, reyni að afla sér yfirlits um fjárhag viðkomandi kvikmyndaframleiðanda. Á bak við þetta er heldur engin forræðishyggja eins og er svo vinsælt að ýta málum hér út af borðinu með einhverju orði sem heitir
forræðishyggja. Hér er í raun og veru bara um það að ræða að menn taki tillit til reynslunnar í kvikmyndaframleiðslu hér á undanförnum árum. Það liggur fyrir, m.a. í umsóknum Kvikmyndasjóðs á hverju einasta ári, að það koma aðilar sem hafa lagt í kvikmyndaframleiðslu og hafa lent í gífurlegum fjárhagslegum erfiðleikum sem hefði verið hægt að sjá fyrir og benda mönnum á að gætu stofnað þeirra persónulega fjárhag í stórkostlega hættu. Hér er í raun og veru ekki verið að segja neitt annað en það að stjórnin eigi að kynna sér fjárhag viðkomandi fyrirtækis eftir föngum af því að hér er líka um styrk að ræða. Hér er ekki um að ræða í öllum tilvikum lán heldur í flestum tilvikum styrk. Og ég bendi á að allir aðrir sjóðir sem eru með hliðstæða starfsemi, hvort sem um er að ræða lán eða styrki, þó það séu bara lán reyndar, afla sér vitneskju um fjárhag þeirra fyrirtækja sem verið er að lána.
    Í annan stað kom það fram hjá hv. þm. að það

væri ruglingslegt að tala annars vegar um lán í fyrsta málslið og hins vegar um styrk, m.a. í 6. gr. sérstaklega og einnig endurtekið í 8. gr., og svo er talað um ábyrgðir. Hv. þm. bað um að þetta yrði skýrt aðeins betur. Í gildandi lögum er talað um lán, það er ekkert nýtt. Það er ekki nýtt í þessu frv. Í gildandi lögum segir styrkir og lán. Hér er í raun og veru ekki verið að segja neitt annað en það að þeim þætti í starfsemi sjóðsins má halda áfram ef fyrir því eru önnur efnisleg rök. Ég held að það skipti út af fyrir sig talsverðu máli að þjónusta sjóðsins við kvikmyndagerðina sé fjölbreytt, hún sé ekki eingöngu í formi styrkja heldur komi þar fleiri þættir til, eins og lán og ábyrgðir.
    Í máli hv. 18. þm. Reykv. kom það einnig fram að orðalagið í fyrri málsl. 9. gr. væri gagnrýni vert og ég tek undir það, sem kom fram hjá hv. 2. þm. Reykv., að þar ætti auðvitað að standa Ríkisendurskoðun. En hér er í rauninni ekki um neitt annað að ræða en það sem er þegar í gildandi lögum um Ríkisendurskoðun. Að öll fyrirtæki, sem eru með framlög sem nema meira en helmingi af kostnaði við rekstur viðkomandi fyrirtækis, eru í raun og veru undir þá sök seld að Ríkisendurskoðun getur, samkvæmt gildandi lögum, farið yfir fjárhag þeirra.
    Út af fyrir sig er það athyglisvert umhugsunarefni, sem vikið var að hér áðan, að reyna að komast fram hjá því að vera með tiltölulega naglfest skipulag í þessum efnum í einstökum atriðum. Ég held hins vegar, eins og aðstæðurnar eru, að í raun og veru sé engin önnur leið fyrir löggjafann en að reyna að hafa þessar boðlínur eins skýrar og kostur er. Til að undirstrika
hvað það er stór vandi hér á höndum má benda á að umsóknir um stuðning úr Kvikmyndasjóði á sl. ári námu alls um 500 millj. kr. Og það var mat nýju úthlutunarnefndarinnar að í raun og veru hefði þurft a.m.k. 150 millj. kr. til þess að afgreiða þær umsóknir sem fyrir lágu, en úthlutunarnefndin hafði liðlega 60 millj. kr. til ráðstöfunar eftir að rekstur Kvikmyndasjóðs hafði verið greiddur úr sjóðnum sjálfum.
    Það er stórkostleg gróska í íslenskri kvikmyndagerð. Umsóknum hefur farið fjölgandi, verkin eru stöðugt metnaðarmeiri. Þetta birtist reyndar á mörgum öðrum sviðum líka. Það varð geysileg fjölgun á verkefnum 1988--1990. Það varð sennilega tvöföldun eða þreföldun frá því sem verið hefur. Þetta birtist á fleiri sviðum. Tökum t.d. atvinnuleikhópa sem hér hafa verið starfandi um nokkurt skeið. Sá aðili, sem hefur með að gera úthlutun á fjármunum til atvinnuleikhópa, stóð frammi fyrir því núna fyrir nokkrum vikum að umsóknir bárust um stuðning við 51 nokkurn veginn fullgild verkefni. Sambærilegur umsóknafjöldi um verkefni af þessu tagi fyrir fjórum, fimm árum voru þrjú, fjögur og fimm verkefni. Þannig að það er veruleg gróska á þessu sviði og vandi fyrir ríkið að búa til kerfi sem er þannig að það í rauninni opni fyrir þokkalega afgreiðslu á þessum málum í öllum tilvikum. Það getur það í raun og veru

ekki gert heldur hlýtur að setja fjárhagsramma sem er meira og minna ákveðinn eftir almennum pólitískum og menningarlegum forsendum.
    Hitt er svo ljóst að með þessu frv., eins og það er núna, er verið að auka fjárhagslegt svigrúm íslenskrar kvikmyndagerðar mjög verulega frá því sem verið hefur. Hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson spurði hvort þetta skattaákvæði í reglugerð rúmaðist innan gildandi reglugerðar. --- Svarið er nei, það gerir það ekki. Það rúmast innan laganna, en innan reglugerðarinnar verður að kveða skýrt á um þetta og þess vegna er ætlunin að breyta reglugerðinni þannig að inn í hana bætist orðin ,,og íslenskar kvikmyndir sem hlotið hafa viðurkenningu Kvikmyndastofnunar``.
    Og hvað þýðir nú: ,,... hlotið hafa viðurkenningu Kvikmyndastofnunar``? Þýðir það að aðrir eigi ekki að fá þetta sem ekki fá lánað fé eða styrki úr Kvikmyndasjóði? Þetta þýðir að þær myndir sem eru styrktar eða fá lán eða ábyrgð úr Kvikmyndasjóði geta notið þessa skattafrádráttar og aðrar myndir sem Kvikmyndastofnun telur rétt að gefa sérstakan gæðastimpil. Með öðrum orðum auglýsingamyndir, t.d. fyrir fyrirtæki, mundu ekki fá skattafrádrátt af þessum ástæðum. Þetta er takmarkað í raun og veru til þess að veita þessum fjármunum fyrirtækjanna til kvikmynda sem hafa listrænt gildi, heimildagildi eða almennt menningarlegt gildi þannig að þessir fjármunir fari í raun og veru í þann heildarfarveg sem frv. gerir ráð fyrir.
    Eins og hv. 18. þm. Reykv. lagði áherslu á þá verður auðvitað að halda þannig á þessum málum að fyrirtækin ráði ekki gerð myndanna í einstökum atriðum og m.a. af þeim ástæðum er talað hér um ,,... hlotið hafa viðurkenningu Kvikmyndastofnunar``.
    Eins og ég sagði áðan, herra forseti, þá er þetta af minni hálfu forgangsmál og ég skora á hv. menntmn. að halda þannig á málum að þetta mál nái afgreiðslu, bæði stjórnarliða og stjórnarandstæðinga. Ég held að það skipti mjög miklu máli að ná lendingu í þessu. Og ég segi að hv. menntmn. Nd. er svo vel mönnuð af fólki sem þekkir til þessa málaflokks að henni á ekki að verða skotaskuld úr því að afgreiða þetta mál með myndarlegum og samstæðum hætti á þeim skamma tíma sem sagt er að eftir lifi þessa þings.