Flm. (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum. Þessi breyting er við 5. mgr. 12. gr. laganna, sbr. 7. gr. laga nr. 90/1987, um að þar bætist við nýr málsliður svohljóðandi:
,,Námsmenn við framhaldsskóla, sem lögheimili eiga á stöðum þar sem engir slíkir skólar eru fyrir hendi og hafa ekki nýtt persónuafslátt sinn að fullu
við upphaf haustmissiris, eiga rétt á aukaskattkorti frá skattstjóra til ráðstöfunar fyrir foreldri eða viðurkenndan fjárhaldsmann þar sem tilgreindur er sá persónuafsláttur sem fyrirsjáanlegt er að námsmaðurinn nýtir ekki.``
Lög um staðgreiðslu opinberra gjalda gera ráð fyrir því að launamaður, sem stundar nám í a.m.k. sex mánuði á ári en er í launuðu starfi yfir sumarmánuðina, geti sótt um að fá námsmannaskattkort hjá ríkisskattstjóra sem beri hærri mánaðarlegan persónuafslátt en aðalskattkort. Námsmaður við viðurkennda framhaldsskóla hefur þannig tvö skattkort til afnota fyrir mánuðina júní, júlí og ágúst.
Nú þarf námsmaðurinn að hafa tiltölulega góð laun þessa þrjá mánuði til að fullnýta persónuafslátt sinn sem er einnig leið til að fjármagna námið. Fullvíst má telja að í fæstum tilvikum séu laun námsmanna þennan stutta tíma það góð að þau endist til framfærslu allt skólaárið. Aðstoð þarf því í flestum tilvikum að koma til frá foreldrum eða fjárhaldsmönnum. Framhaldsskólanemendur njóta ekki námslána fyrr en á háskólastigi.
Í eldri skattalögum nutu foreldrar og fjárhaldsmenn afsláttar vegna námskostnaðar barna sinna í framhaldsskólum. Í núgildandi lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda er ekki gert ráð fyrir slíku en þó er gefinn kostur á persónuafslætti námsmannsins, sem oftast er sýnd veiði en ekki gefin.
Sérstakan kostnað umfram aðra hafa nemendur í framhaldsskólum og foreldrar þeirra þegar sækja þarf skóla í önnur byggðarlög. Það felst veruleg mismunun í því fyrir margt landsbyggðarfólk að geta ekki veitt börnum sínum fæði og húsnæði í heimahúsum meðan á framhaldsskólagöngu stendur, heldur verða að senda þau um langan veg með ærnum tilkostnaði. Ég veit um foreldra í mínu byggðarlagi þar sem ekki er um framhaldsskóla að ræða sem þurfa að hafa kostnað af börnum sínum sem þau þurfa að senda um langan veg í framhaldsskóla í önnur byggðarlög sem nemur 250--350 þús. kr. á ári. Ég veit um nemendur sem hafa staðið sig mjög vel í hinum svokölluðu samræmdu prófum, hafa fengið einkunnir milli 9 og 10, hafa ekki komist inn í viðkomandi heimavistir í framhaldsskólum í öðrum byggðarlögum og hafa þess vegna orðið að sitja heima. Ég ber ugg í brjósti að við séum að stefna inn í gamalt fyrirkomulag þar sem menn þurftu að berjast til mennta og við séum aftur að komast í þann vítahring að foreldrar hafi ekki efni
á að senda börn sín til mennta. Við það að fyrirkomulagið, sem áður var í skattalögum, er lagt niður, þ.e. að fjárhaldsmenn eða foreldrar fengu umbun í skattgreiðslum til að geta komið börnum sínum til mennta, er nú á stundum komið í veg fyrir að börnin fái þá menntun sem þau sækjast eftir vegna mismununar á aðstöðu. Því að það segir sig sjálft að það er stórkostlegur munur á því að búa við skólavegg og geta haft börnin í heimahúsum eða þurfa að senda þau um langan veg. Ef kostnaðurinn er slíkur að munar 250--350 þús. kr. á heimili og nemanda, hvort barnið þarf að fara um langan veg til skóla eða ekki, þá sér hver maður í hendi sér að hér er mikið réttlætismál á ferðinni.
Þessu frv. er ætlað að bæta úr þessum aðstöðumun til menntunar í landinu þannig að landsbyggðarfólki, sem ekki býr á framhaldsskólastöðum, gefist kostur á að fullnýta þann persónuafslátt námsmanna sem skattalögin hvort eð er bjóða upp á.
Skv. 1. gr. frv. eiga námsmenn í framhaldsskólum, sem sjaldnast eru í hjónabandi eða sambúð, sama rétt og makar og fólk í sambúð til að framvísa skattkortum sínum til ráðstöfunar, í þessu tilfelli til foreldra eða fjárhaldsmanns. Þessi réttarbót er ætluð til að jafna aðstöðumun til menntunar og er því bundin við lögheimili fjarri framhaldsskólum.
Virðulegi forseti. Að lokinni þessari umræðu vildi ég leggja til að málinu verði vísað til 2. umr. og fjh.- og viðskn.