Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Þeir sem hafa unnið að því oftar en einu sinni að meta breytingar á skattalögum, sérstaklega lögunum um tekjuskatt og eignarskatt, vita auðvitað fjölmörg dæmi þess að útfærsla á þeim almennu reglum sem menn eru sammála um að setja inn í slík lög getur gagnvart mjög afmörkuðum hópum komið öðruvísi út en hin almenna regla felur í sér. Hægt er að nefna fjölmörg dæmi um slíkt, bæði í undirbúningi breytinga á skattalögum og eins þegar framkvæmdin kemur skýrar í ljós. Ástæðan er einfaldlega sú að í okkar flókna og margbrotna þjóðfélagi, þótt lítið sé, geta auðvitað tilvikin verið með svo margslungnum hætti að ekki er hægt í löggjöfinni eða undirbúningi hennar að gera ráð fyrir þeim öllum. Og þá skoða menn yfirleitt slík tilvik og meta þau. Mér finnst það hins vegar ekki vera tilefni til orðalags í grg. um siðleysi vegna þess að siðleysi er allt annar hlutur og sá efnisdómur sem er í grg. frv. og ég gerði að umræðuefni hér áðan felur auðvitað í sér töluvert annað en það sem hv. þm. Geir H. Haarde sagði hér í sinni seinni ræðu. Hann gat þess sjálfur að hann hefði ekki hugmynd um hvort það væru fáir einstaklingar eða þá hve margir sem þessi misbrestur hefði komið niður á. ( GHH: Þeir vita það ekki sjálfir.) Nei, en ef þeir vita það ekki sjálfir er kannski erfitt að fella dóm um alvarlegt siðleysi stjórnvalda gagnvart einhverjum sem enginn veit hvort hefur orðið fyrir því. ( GHH: Það kemur í ljós við álagninguna í sumar.) Já, já, það getur auðvitað komið í ljós þá. En þingmaðurinn þekkir væntanlega máltækið um að gera úlfalda úr mýflugu. Annaðhvort er hér um að ræða tæknilegar útfærslubreytingar sem nauðsynlegt kann að vera að gera á skattalögunum og ber þá að meðhöndla sem slíkt, eins og mér skildist nú öðrum þræði í ræðu hv. þm., og hins vegar um einhvern meiri háttar pólitískan ágreining. Ég ætla ekkert á þessu stigi að kveða upp úr um það. Ég lýsti hins vegar viðhorfum mínum gagnvart því að það væri hæpið að fara að breyta merkingu orðsins afturvirkni í skattalögum frá því víðtæka samkomulagi sem hefur náðst um merkingu þess hugtaks milli ólíkra aðila í okkar þjóðfélagi og ólíkra stjórnmálaflokka í landinu. Þessa hluti er út af fyrir sig alveg sjálfsagt að skoða. Ég hef aldrei lagst gegn því að hlutirnir væru skoðaðir með þessum hætti og get alveg fallist á það, eins og hv. 1. flm. nefndi hér, að embættismenn fjmrn. og skattkerfisins skoði þetta mál. Þess vegna þarf í sjálfu sér ekki mikið meira um það að segja á þessu stigi. En það er svona stundum þegar ég hlusta á hv. þm. Geir H. Haarde að mér finnst erfitt að átta mig á því hvort þar talar hinn ágæti ræðumaður og starfsmaður í fjmrn. um árabil, sem hefur auðvitað góða innsýn í erfiðleika þessara mála, eða hvort þar talar hinn vaski, nýi þingmaður Sjálfstfl. hér á Alþingi sem hefur tekið að sér forustuhlutverk í málflutningi í efnahagsmálum í þessari hv. deild. Í síðustu ræðu fannst mér þeir báðir tala til skiptis. Mér er engin launung á því, sem
kannski er skiljanlegt, að mér geðjast mun betur að fyrri manninum sem ég lýsti hér áðan en hinum síðari og er reiðubúinn að eiga viðræður við hinn fyrri um þetta mál.