Forseti (Hjörleifur Guttormsson):
Forseti vill geta þess að það hefur gengið mjög greitt að þoka fram málum á dagskrá og það er hugmyndin að taka hér fyrir að lokinni umræðu um þetta mál enn eitt mál, 9. mál. Fleiri eru á mælendaskrá í þessu máli og það var áhugamál forseta að hægt væri að ná atkvæðum um þau mál sem hægt væri að vísa til nefnda fyrir lok fundar. Það er ábending um að æskilegt væri að við gætum haft þessar umræður frekar knappar vegna þess að nú er laugardagur.