Frsm. félmn. (Hjörleifur Guttormsson):
    Virðulegur forseti. Nál. félmn. um till. til þál. um aukin verkefni sveitarfélaga er svohljóðandi:
    ,,Nefndin hefur fjallað um tillöguna og sendi hana fjölmörgum til umsagnar, þar á meðal til margra sveitarfélaga. Eftirtaldir umsagnaraðilar mæltu með samþykkt tillögunnar: Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, bæjarstjórn Blönduóss, bæjarstjórn Siglufjarðar, bæjarráð Borgarness, bæjarráð Stykkishólms, Fjórðungssamband Norðlendinga, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, bæjarráð Njarðvíkur, bæjarráð Hafnarfjarðar, bæjarráð Ólafsfjarðar, bæjarstjórn Egilsstaða, bæjarstjórn Dalvíkur, bæjarstjórn Akureyrar. Eftirtaldir umsagnaraðilar mæltu ekki með samþykkt tillögunnar eða töldu ekki tímabært að hefja þá vinnu sem hún gerir ráð fyrir: Bæjarstjórn Sauðárkróks, Fjórðungssamband Vestfirðinga, bæjarstjórn Ísafjarðar, Samband sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi, bæjarstjórn Ólafsvíkur, bæjarstjórn Neskaupstaðar, bæjarráð Vestmannaeyja, bæjarráð Keflavíkur, bæjarstjórn Akraness, bæjarráð Selfoss. Á fund nefndarinnar kom Húnbogi Þorsteinsson, ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðuneyti.
    Lögð var fram í nefndinni skýrsla með upplýsingum um byggðamál á Norðurlöndum, tekin saman af Sigurði Helgasyni, fyrrv. sýslumanni, fyrir Byggðasamtökin Útvörð. Er þar sérstaklega gerð grein fyrir lýðræðislega
kjörnum héraðsstjórnum og þróun byggðamála á Norðurlöndum að undanförnu. Einnig lá fyrir nefndinni skýrsla tekin saman fyrir Samband sveitarstjórna í Austurlandskjördæmi (ágúst 1989): ,,Felst lausnin í fylkisstjórn? Skýrsla starfshóps um þriðja stjórnsýslustigið``.
    Nefndin er þeirrar skoðunar að æskilegt sé að stuðla að frekari valddreifingu í þjóðfélaginu með því að sveitarfélög, héraðsnefndir eða önnur samtök, sem mynduð kunna að verða, taki við verkefnum frá ríkinu enda sé tryggt að nauðsynlegir tekjustofnar fylgi. Undirbúningur að slíkri verkefnatilfærslu þarf að vera vandaður og taka mið af fenginni reynslu hérlendis og í nágrannalöndum. Aðdragandi að lagasetningu um þessi efni hefur verið langur hér á landi eins og gerðist við lagasetningu á síðasta ári um breytta verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Því telur nefndin réttmætt að stjórnvöld, í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og landshlutasamtök sveitarfélaga, hefji könnun á því hvernig best verði staðið að tilfærslu á verkefnum og tekjustofnum. Í samræmi við þetta flytur nefndin breytingu á tillögunni á sérstöku þingskjali og leggur til að hún verði samþykkt þannig.
    Kristinn Pétursson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.``
    Þetta er gjört á Alþingi 10. apríl 1990 og undir það rita aðrir nefndarmenn í félmn.
    Brtt. sem er á þskj. 986 er svohljóðandi:
,,1. Tillgr. orðist svo:

    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að kanna skipulega í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og landshlutasamtök sveitarfélaga hvernig best verði staðið að frekari tilfærslu á verkefnum og tekjustofnum frá ríkinu til sveitarfélaga og héraða.
    2. Fyrirsögn till. verði: Till. til þál. um tilfærslu verkefna og tekjustofna frá ríki til sveitarfélaga og héraða.``