Jón Kristjánsson:
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti atvmn. um till. til þál. um leiðsögumenn í skipulögðum hópferðum erlendra aðila á Íslandi. Ég mæli fyrir tillögunni í forföllum formanns sem hefur fjarvistarleyfi.
    Nefndin fjallaði um tillöguna og sendi hana til umsagnar og bárust umsagnir um hana frá Bifreiðastjórafélaginu Sleipni, Birnu G. Bjarnleifsdóttur, forstöðumanni Leiðsöguskólans, Félagi íslenskra ferðaskrifstofa, Félagi leiðsögumanna, Ferðamálaráði Íslands og Norrænu ferðaskrifstofunni.
    Niðurstaðan af þessu varð sú að nefndin telur rétt að breyta tillögunni á þann veg að samgrh. verði falið að skipa nefnd sem hafi það hlutverk að endurskoða reglugerð nr. 175/1983, um eftirlit með skipulögðum hópferðum erlendra aðila til Íslands í atvinnuskyni. Í nefndinni eigi sæti fimm fulltrúar og eigi samgrn., umhvrn., Félag leiðsögumanna og Félag íslenskra ferðaskrifstofa hvert að tilnefna einn fulltrúa. Ferðafélög áhugamanna tilnefni síðan einn fulltrúa sameiginlega.
    Eftir endurskoðunina skal reglugerðin m.a. fela í sér:
    a. skilgreiningu á því hvað telst vera skipulögð hópferð,
    b. að skylt verði að hafa leiðsögumann með starfsréttindi Ferðamálaráðs í hópferðum erlendra ferðamanna um landið sem skipulagðar eru í atvinnuskyni af íslenskum eða erlendum aðilum,
    c. í hvaða tilvikum og með hvaða skilyrðum unnt væri að veita undanþágur til að ráða aðra í störf leiðsögumanna.
    Það kom fram í störfum nefndarinnar að e.t.v. væri tillagan of fortakslaus í þessu efni.
    Nauðsynlegt er að hefjast handa um þessa endurskoðun sem fyrst þannig að ný reglugerð taki gildi eigi síðar en 1. jan. 1991. Einnig er gerð tillaga um breytta fyrirsögn þáltill.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt með fyrrgreindum breytingum sem liggja fyrir á sérstöku þingskjali.
    Danfríður Skarphéðinsdóttir sat fund nefndarinnar og er samþykk þessari afgreiðslu málsins. Matthías Á. Mathiesen og Geir Gunnarsson voru fjarstaddir við afgreiðslu málsins.
    Undir nál. skrifa Árni Gunnarsson, Jón Kristjánsson, Pétur Bjarnason, Sólveig Pétursdóttir, með fyrirvara, og Hreggviður Jónsson, með fyrirvara.
    Brtt. eru á þskj. 988 og hljóða svo:
,,1. Tillgr. orðist svo:
    Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að skipa nefnd til að endurskoða reglugerð nr. 175/1983, um eftirlit með skipulögðum hópferðum erlendra aðila til Íslands í atvinnuskyni. Í nefndinni eigi sæti fimm fulltrúar skipaðir af eftirfarandi aðilum: samgrn., umhvrn., Félagi leiðsögumanna, Félagi íslenskra ferðaskrifstofa og ferðafélögum áhugamanna. Ný reglugerð öðlist gildi eigi síðar en 1. jan. 1991.
    2. Fyrirsögn tillögunnar verði: Till. til þál. um

leiðsögumenn og endurskoðun reglugerðar nr. 175/1983, um eftirlit með skipulögðum hópferðum erlendra aðila til Íslands í atvinnuskyni.