Óafgreidd þingmál
Mánudaginn 23. apríl 1990


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Frú forseti. Vegna beinnar spurningar 1. þm. Reykn. um það hvenær sé að vænta skýrslu um stöðu viðræðna um nýtt álver, sem ég tel reyndar að hafi efnislega komið fram í þinginu eins og ég nefndi áðan, þá er að því stefnt að hið formlega svar, hin formlega skýrsla um málið komi til þingsins á miðvikudag og getur vonandi orðið þingmönnum að meira gagni vegna þess hversu málið hefur skýrst á þeim tíma sem liðinn er frá því að skýrslubeiðnin var fram borin. En eins og þingmönnum er kunnugt er nú stefnt að þinglausnum 4. eða 5. maí.