Danfríður Skarphéðinsdóttir:
Virðulegur forseti. Sú nefnd sem undirbjó þá þáltill. um ferðamálastefnu sem hér liggur frammi fékk að sönnu viðamikið verkefni til að fjalla um. Sýnist mér að hún hafi skilað fyrsta hluta þess með miklum ágætum því hér liggur fyrir tillagan ásamt mörgum fylgiskjölum og mjög ítarlegum upplýsingum um hvaðeina sem ferðaþjónustu tengist. Það hlýtur að vera svo á þessum síðustu dögum þingsins að till. þessi sé aðeins lögð fram til kynningar og væntanlega mun okkur gefast góður tími til að lesa allar þær upplýsingar sem hér liggja frammi í sumar.
Ég vil aðeins lýsa því hér sem minni skoðun að ég tel rétt og nauðsynlegt að stjórnvöld móti ákveðna stefnu í þessari atvinnugrein. Eins og fram kom í máli hæstv. samgrh. hefur þessi atvinnugrein mikið þjóðhagslegt gildi fyrir okkur, sé rétt á málum haldið. Ferðaþjónustan hefur sýnt að hún getur staðið á eigin fótum sem atvinnugrein en ég vil benda á það að ferðaþjónusta er samt mjög háð tveimur mörkuðum tekjustofnum sem eiginlega eru lykilatriði varðandi uppbyggingu ferðaþjónustunnar. Það er annars vegar markaður tekjustofn til Ferðamálaráðs og hins vegar markaðir tekjustofnar til vegamála.
Samgöngumálin verða auðvitað að komast í betra lag ef við eigum að ná því að dreifa ferðamönnum um landið eins og nauðsynlegt er. Eins og fram kom í máli hæstv. samgrh. eru umhverfismálin mjög mikilvægur þáttur í ferðaþjónustunni. Við verðum ætíð að hafa verndun náttúru og umhverfis að leiðarljósi. Það getur hins vegar þýtt það að við verðum að taka ákvarðanir sem geta reynst erfiðar í bili, svo sem að takmarka umgengni um ákveðin svæði eða hreinlega loka þeim.
Við þurfum e.t.v. líka að gera upp við okkur hvort við teljum æskilegt að leggja upp úr því að fjölga erlendum ferðamönnum sem koma til landsins. Mér sýnist að miðað við þann fjölda sem nú kemur, auk vaxandi fjölda
Íslendinga, sem sem betur fer ferðast um landið núna hin seinni ár, að þá taki landið vart við meiru eins og aðstæður eru.
Ég vil aðeins drepa á annað varðandi umhverfið og það er umhverfisfræðsla. Ég tel að það þurfi að stórauka hana og vil minna á till. Kvennalistans um það efni sem samþykkt var hér á síðasta þingi. Því aðeins getum við vænst þess að erlendir gestir okkar gangi um náttúruna eins og við viljum að við Íslendingar göngum á undan með góðu fordæmi.
Það er auðvitað heldur ekki hægt að fjalla um þessa atvinnugrein án þess að minna á hið himinháa verð á matvælum sem hér er og hefur dregið mjög úr sölu hjá veitingahúsum svo þau hafa átt í vök að verjast hin seinni ár. Það hefur færst í vöxt og verið mikið um það rætt að undanförnu að útlendingar, eða margir þeir sem hingað koma, flytji með sér allar sínar daglegu nauðsynjar.
Ég ætla ekki að fara nánar út í efni þessarar viðamiklu till. að svo stöddu þar sem ég þykist viss
um að okkur muni gefast góður tími til að skoða þetta betur fram að næsta þingi. En ég vil leggja áherslu á að ég fagna því að tekið er á þessum málum núna og vil ekki ljúka máli mínu án þess að minnast á annað lykilatriði. Menntunarmálin og umhverfismálin eru lykilatriði í ferðaþjónustunni. Við þurfum að mennta það fólk sem á að starfa í atvinnugreininni og því þarf að móta stefnu í menntunarmálum fólks í ferðaþjónustunni á öllum stigum hennar.
Annars vil ég, eins og ég gat um áðan, enn og aftur fagna því að tekið skuli á þessu máli og viðurkennt þar með að þessi atvinnugrein skipti okkur verulegu máli og að það þurfi að hafa ákveðna stefnu til að ná þeim markmiðum sem við stefnum að með henni.