Ferðamálastefna
Mánudaginn 23. apríl 1990


     Hjörleifur Guttormsson:
    Virðulegur forseti. Ég get ekki látið hjá líða að mæla örfá orð í sambandi við þáltill. sem hér er rædd. Það er auðvitað mjög ánægjulegt að hún skuli hafa komist hér til umræðu þrátt fyrir miklar annir á Alþingi og það er ánægjuefni að svo margir hv. þm. hafa tjáð sig um málið og það með þeim hætti sem liggur fyrir. Hér hefur komið fram mjög ríkur skilningur á þörfinni að marka stefnu varðandi ferðamálin í landinu og undirtektir við þá viðleitni sem felst í þeirri tillögu sem hér liggur fyrir og ég hef komið að ásamt átta öðrum sem tóku sæti í nefnd hjá hæstv. samgrh. til að vinna að þessu máli. Það hefur verið mjög ánægjulegt að starfa í þessari nefnd vegna þess að einnig þar hefur svifið mjög jákvæður andi yfir vötnum og mikill áhugi vaknað hjá þeim mörgu viðmælendum sem nefndin hefur átt tal við á starfstíma sínum frá því í fyrrasumar og ég vænti þess að af þessu starfi og meðferð Alþingis á þessu máli geti margt sprottið til heilla fyrir þessa atvinnugrein sem hefur eins og fyrir liggur og menn hafa undirstrikað hér mjög vaxandi þýðingu í okkar þjóðarbúskap.
    Ég tel að hér hafi ekkert verið ofmælt um möguleikana á því að auka ferðaþjónustuna sem burðarás í atvinnustarfsemi í landinu. Það er þó háð því skilyrði að tekið verði vel á þeim málum sem snúa að opinberum aðilum í þessu sambandi, en þau eru hinn almenni starfsrammi sem þessari atvinnugrein er skapaður og eðlilegur fjárstuðningur til verka sem eðlilegt er að ríkisvaldið sinni. Eins og menn taka eftir er í þessari stefnumörkun ekki gert ráð fyrir að ríkið sé að grípa inn í sem rekstraraðili í atvinnugreininni nema þá í sérstökum tilvikum til þess að hjálpa til eða koma af stað þróun. Engu að síður blasir við að í ýmsum efnum þarf hið opinbera að koma að til þess að tryggja farsæla þróun og tryggja undirstöður fyrir vöxt greinarinnar. Það á m.a. við í sambandi við verndun umhverfis og stýringu á uppbyggingu greinarinnar með tilliti til þess að sú auðlind sem dregur flesta hingað til landsins sem ferðamenn, þ.e. náttúra landsins, bíði ekki hnekki af heldur verði áfram til staðar í sem bestu ástandi. En ferðamálin hafa auðvitað engu síður þýðingu fyrir landsmenn sjálfa á ferðum þeirra um landið og tengjast margvíslegri starfsemi sem þarf að vera til staðar sem almenn þjónusta við íbúana í byggðarlögum. Ferðaþjónustan hefur þá ágætu kosti í rauninni að vera fallin til að dafna víða um land, nánast alls staðar þar sem eru byggð ból í landinu, og það er auðvitað eiginleiki sem er mjög jákvæður í sambandi við þessa grein og hlýtur að vera hvetjandi fyrir alla á hv. Alþingi að stuðla að því að sú þróun geti haldið áfram og fái sem farsælastan framgang.
    Hér hefur komið fram í máli hv. þingmanna að þessu starfi þurfi að fylgja eftir með ákvörðunum af hálfu Alþingis í formi laga og í formi fjárveitinga og það er sannarlega réttmætt. Það er verkefni sem nefndin sem vann að þessari tillögugerð á eftir að

gera tillögur um, þ.e. breytingu á lögum um ferðamál eftir því sem ástæða er talin til. Eins og menn sjá af því sem fram kemur í grg. með tillögunni liggja fyrir af hálfu nefndarinnar, og undir það er tekið af ráðuneyti með flutningi tillögunnar, ákveðnar grunnhugmyndir um endurskoðun
laga og mótun nýrrar löggjafar um ferðaþjónustu. Þeir sem um tillöguna fjalla geta því séð af henni hvað er fyrirhugað af nefndarinnar hálfu í sambandi við lagabætur.
    Ég tek hins vegar undir það með hv. þm. Friðjóni Þórðarsyni, sem hefur verið mjög góður liðsmaður í þessari stjórnskipuðu nefnd og hefur mikla reynslu af ferðamálum og hefur komið að þeim áður, að við breytum ekki lögum breytinganna vegna. Margt hefur tekist ágætlega til í þeim efnum en ýmislegt má þó færa til bóta og stilla saman til þess að ná betri árangri og það hlýtur að verða haft að leiðarljósi við meðferð málsins.
    Mér þótti mjög ánægjulegt að heyra í máli þingmanna, t.d. það sem fram kom hjá hv. 1. þm. Vestf., þann næma skilning á gildi og möguleikum ferðaþjónustu sem kom fram í máli hans og þörfinni á að líta á þessa starfsemi sem hvern annan atvinnuveg, sem útflutningsgrein, sem hún sannarlega er, og taka tillit til hagsmuna fyrirtækja í ferðaþjónustu þegar ákvarðanir eru teknar í efnahagsmálum. Það er mikið í húfi í þeim efnum og það eru margir þættir sem hafa þarf auga á. Í raun er engin ein atvinnugrein í okkar landi jafnfjölbreytt eðli málsins samkvæmt og ferðaþjónustan. Það eru gífurlega margir aðilar sem þar koma að verki og þurfa að eiga eðlilegt samstarf og eðlilegt svigrúm til starfa til að greinin geti þróast með farsælum hætti.
    Í grannlöndum okkar er verið að vinna merkilegt starf á þessu sviði, á sviði ferðamálanna og við þurfum auðvitað að horfa til þess sem þar er vel gert. Það höfum við reynt að gera í starfi þessarar nefndar að svo miklu leyti sem það hefur verið á okkar færi miðað við tíma og aðstöðu, en af reynslu nágrannaþjóða má margt læra í þessum efnum. Ég tel mjög æskilegt, og raunar er það ósk þeirra sem að þessu hafa starfað, að sú hv. þingnefnd, atvinnumálanefnd sameinaðs þings, sem fær þetta mál til meðferðar komi því áleiðis til ýmissa aðila í ferðaþjónustu. Leitað verði umsagna þannig að þó að
tillagan fái ekki afgreiðslu á þessu þingi fái aðilar í ferðaþjónustu möguleika á að segja sitt álit enn frekar en orðið er og hefur þó vissulega verið haft mjög náið samstarf við fjölmarga á þeim vettvangi. Þannig geti þetta mál og væntanleg frumvörp komið til þingsins að hausti í sem bestum búningi að höfðu samráði við þá sem mest eiga undir að vel takist til.