Afgreiðsla þingmála
Þriðjudaginn 24. apríl 1990


     Forseti (Jón Helgason):
    Hv. 2. þm. Norðurl. e. óskaði eftir því að hæstv. forsrh. yrði við þessa umræðu og eins og ég sagði áðan er hann ekki staddur í húsinu. Til þess að verða við þeirri beiðni hef ég óskað eftir að skilaboðum yrði komið til forsrh. og hyggst ég nota tímann til að taka fyrir 2. mál á dagskrá sem ég vænti að verði aðeins atkvæðagreiðsla.