Afgreiðsla þingmála
Þriðjudaginn 24. apríl 1990


     Halldór Blöndal:
    Herra forseti. Ég minnist þess að hæstv. forsrh. hafi í fjölmiðlum haft orð á því að einstakir ráðherrar mættu illa í þinginu og hafi áminnt ráðherra sína um að gegna þingskyldu sinni. Ég verð því að láta segja mér það þrem sinnum að hæstv. forsrh. sé ekki í húsinu og gegni ekki sinni þingskyldu.