Raforkuver
Þriðjudaginn 24. apríl 1990


     Guðmundur H. Garðarsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Ég tek undir ósk hv. 2. þm. Norðurl. e. um það að umræðum verði frestað í þessu máli og vísa til þeirra ummæla hans hér áðan að við viljum fá tækifæri til að ræða þetta í samfelldri umræðu að viðstöddum þeim ráðherrum sem þessi mál snerta. Við höfum ástæðu til að halda að þeir ráðherrar verði ekki til staðar hér á eftir án þess að ég fari nánar út í það, virðulegi forseti, þannig að ég óska einnig eftir því að þessi umræða fari ekki fram núna, heldur verði frestað þangað til á morgun þannig að hún geti verið samfelld og með þeim hætti sem við á.