Halldór Blöndal (um þingsköp) :
Herra forseti. Í fyrsta lagi vil ég taka það fram að hæstv. forsrh. virðist ekki kunnugt um að iðnn. kom saman í morgun til þess að ræða þetta mál. Það er því ekki um það að ræða að tefja fyrir því að frv. fái þinglega meðferð í nefnd. Sjálfstfl. hefur ekki gert athugasemd við það að sú vinna geti byrjað, enda höfum við auðvitað verið helstu áhugamenn um það að til stóriðju komi hér á landi á réttum forsendum.
Á hinn bóginn er ekki við því að búast að þær fsp. sem óhjákvæmilegt er að bera fram, líka við formann Alþb., Ólaf Ragnar Grímsson, og að hæstv. menntmrh. viðstöddum, að sú umræða taki hálftíma eða klukkutíma. Í fyrsta lagi er nauðsynlegt að gera grein fyrir þeim ágreiningi sem upp er kominn milli einstakra ráðherra. Það er nauðsynlegt að rekja aðdraganda þessa máls og það er nauðsynlegt að tíunda þau sjónarmið sem hæstv. iðnrh. hefur látið í ljós, sem í sumum tilvikum er óhjákvæmilegt að líta á sem forsendur fyrir þeirri vinnu sem hann hefur lagt í stóriðjumálin og sem líka er óhjákvæmilegt að líta á sem forsendur fyrir þeim samningaviðræðum sem nú standa yfir milli Atlantsálshópsins og Íslendinga.
Ég er þess vegna reiðubúinn, herra forseti, að halda umræðum áfram ef svo ber að skilja að umræðunni verði haldið viðstöðulaust áfram til kl. 7 ef nauðsynlegt verður. En ég get á hinn bóginn ekki fallist á það að ráðherrar gangi úr deildinni þegar þeim þykir henta eða ráðherrar séu svo vant við látnir að þeir reyni af þeim sökum að hliðra sér hjá því að svara eðlilegum fyrirspurnum. Ef hæstv. forsrh. kýs að umræðan fari fram núna þá er sjálfsagt að verða við því og þá sér maður hvort einstakir ráðherrar verða við þeim tilmælum forsrh. að svara einarðlega þeim spurningum sem fram eru bornar, eins og hæstv. forsrh. lofaði að gera að sínu leyti.