Sveitarstjórnarlög
Þriðjudaginn 24. apríl 1990


     Salome Þorkelsdóttir (um atkvæðagreiðslu) :
    Hæstv. forseti. Mér finnst ástæða til að vekja athygli á því að hér hefur farið fram atkvgr. til að vísa máli til nefndar. Sjö þingmenn stjórnarandstöðunnar ásamt fimm þingmönnum stjórnarliðsins hafa tekið þátt í þessari atkvgr.