Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um Listskreytingasjóð sem endurskoðuð hafa verið í samræmi við ákvæði lagnna. Helstu breytingar sem í frv. felast eru þessar:
1. Það er gerð nokkur rýmkun á verksviði sjóðsins þannig að sjóðnum verður núna heimilt að styrkja ekki aðeins verkefni til að fegra opinberar byggingar heldur einnig umhverfi þeirra.
2. Sett er skýr heimild til að binda framlag eða styrk úr sjóðnum skilyrði um mótframlag frá eiganda mannvirkis í ákveðnum tilvikum. Þessi ákvæði hafa ekki verið nægilega skýr.
3. Sett eru ákvæði er varða meðferð listskreytinga sem sjóðurinn veitir framlag til.
Frv. þetta hefur þegar sætt meðferð í hv. Nd. og þar skilaði hv. menntmn. samhljóða áliti þar sem segir m.a.:
,,Um leið og nefndin mælir með samþykkt frv. vill hún leggja á það áherslu að hún telur mikilvægt að lögbundin framlög til sjóðsins séu ekki skert í fjárlögum.``
Ég tel mjög mikilvægt að undir þetta hafa ritað þingmenn allra flokka, að menn vilji halda framlögum til sjóðsins sem hæstum. Það er auðvitað ein meginforsenda þess að unnt verði að framkvæma þessi lög þannig að skaplegt sé.
Ég tel, með hliðsjón af því að mál þetta hefur fengið ítarlega meðferð í hv. Nd., ekki ástæðu til að orðlengja það frekar og legg til að að lokinni þessari umræðu verði því vísað til 2. umr. og hv. menntmn.