Raforkuver
Þriðjudaginn 24. apríl 1990


     Halldór Blöndal:
    Herra forseti. Eins og ég sagði áðan hefði verið fullnægjandi fyrir hæstv. fjmrh. að láta iðnrh. tala fyrir sinn munn því hann vék hvergi, hvorki í smáu né stóru, að þeim áhersluatriðum sem hæstv. menntmrh. hafði vikið að í gær, enda má segja að það þurfi ekki að koma á óvart því öllum er kunnugt um að pólitískt samstarf þeirra er með þeim hætti nú að hæstv. fjmrh. er það síst í hug að taka undir sjónarmið hæstv. menntmrh. í litlu sem stóru. Það vakti líka sérstaka athygli að hæstv. fjmrh. taldi það ekki vera sitt hlutverk að túlka stefnu þingflokks Alþb., enda má kannski segja að aðrir séu betur um það færir.
    Ég vil út af ummælum þakka öðrum hæstv. ráðherrum fyrir að þeir skyldu hafa svarað fyrirspurnum. Ég vil, hæstv. forsrh., vekja athygli á því að samkvæmt bráðabirgðaákvæði þá er það ekki á valdi iðnrh. að heimila það að 300 millj. kr. sé varið til undirbúnings Fljótsdalsvirkjunar, stækkunar Búrfellsvirkjunar, fimmta áfanga Kvíslaveitu og stofnlínu á árinu 1990, heldur er það lagt í vald ríkisstjórnarinnar í heild sem auðvitað staðfestir þann pólitíska ágreining sem er í ríkisstjórninni um þetta mál og fram kom í ræðu hæstv. menntmrh.
    Ég vil aðeins víkja að þeim spurningum sem ég lagði fyrir hæstv. forsrh. og þeim svörum sem gefin voru. Ég skildi hæstv. menntmrh. svo að hann ætlaðist til þess að álverið lyti að öllu íslenskum dómstólum, en ef það er svo að hæstv. menntmrh. fellst á þá lausn sem hæstv. iðnrh. vísaði til og er lýst á bls. 13 í frv. til laga um álver, þá verð ég að segja eins og mér finnst, að hin ríka áhersla sem hæstv. menntmrh. lagði á þetta atriði í ræðu sinni í gær var algerlega út í hött. Ég skildi hæstv. menntmrh. svo að hann væri ekki sammála þeim hugmyndum sem fram koma um alþjóðlegan gerðardóm til úrlausnar á ágreiningsmálum við ríkisstjórn. Ég heyrði á formanni Alþb., það var erfitt að greina nokkur kjarnaatriði í hans ræðu satt að segja, þetta var nú svona
hálfgerð froða, en eftir því sem ég skildi formann Alþb. þá var hann sammála þessari túlkun iðnrh. og kemur ekki á óvart að forræðið yrði ekki í íslenskum höndum að öllu leyti eins og ég skildi hæstv. menntmrh. í gær. Hæstv. menntmrh. getur þá leiðrétt ef ég fer rangt með, hann er hér staddur og getur sjálfur staðfest það hvort hann sé sammála þeirri tilhögun sem á bls. 13 er lögð til í sambandi við lögsögu og lausn deilumála.
    Ef þarna er ekki um ágreining að tefla milli Alþb. og ríkisstjórnarinnar í heild þá er þeim þröskuldi rutt úr vegi og þá er það allsherjar staðfesting á því að þau sjónarmið í þessu efni sem við sjálfstæðismenn og alþýðuflokksmenn lögðum til grundvallar í álsamningunum á sínum tíma hafa unnið sér þegnrétt hér hjá okkur og hafa sannað gildi sitt og kemur auðvitað ekki á óvart að sérstaklega framsóknarmenn fallist á þau almennu sjónarmið sem við settum fram á þeim tíma og voru í álsamningunum.

    Ég vil í öðru lagi beina þeirri fyrirspurn til hæstv. menntmrh. hvort hann sé ánægður með þau svör sem samráðherrar hans þrír hafa gefið um það hvernig eignaraðild að álverksmiðjunni verður. Hæstv. menntmrh. sagði í gær að Íslendingar þyrftu að eiga meiri hluta, verulegan eignarhluta eða tryggja forræði sitt yfir viðkomandi fyrirtæki með öðrum sambærilegum hætti og sagði að ríkisstjórnin hefði ekki fyrir sitt leyti á neinn hátt útilokað þann möguleika að Íslendingar gætu átt verulegan eignarhluta í þessu fyrirtæki. Hæstv. menntmrh. sagði enn fremur að eignarhlutfall Íslendinga væri enn á borðinu, bæði pólitískt af hálfu Alþb. og af hálfu ríkisstjórnarinnar í heild.
    Hæstv. forsrh. gaf í skyn að slíkt gæti komið til greina, ef ég skildi hann rétt, en á hinn bóginn hefur hæstv. iðnrh. gengið út frá öðru í sínum samningum. Hann hefur gengið út frá því að álverið yrði í eigu hinna erlendu fyrirtækja. Ég held að það væri fróðlegt að fá svar við því frá hæstv. iðnrh. hvort hann lítur svo á að hann hafi heimild ríkisstjórnarinnar til þess að leggja málið þannig fyrir í samningaviðræðum við Atlantalhópinn.
    Ef það er rétt að enginn ágreiningur er um þetta atriði, ef það er svo að hæstv. menntmrh. átti ekki við neitt sérstakt þegar hann talaði um forræði Íslendinga yfir álverinu, þá er það líka vísbending um að ræða hans í gær hafi verið tilgangslaus og markleysa.
    Í þriðja lagi var það athyglisvert að í þeim fáu orðum sem hæstv. fjmrh. vék að efni spurninganna kom fram að hann hafði vilja til þess að álverið risi utan Stór-Reykjavíkursvæðisins, utan Suðvesturlands. Sama hugsun kom fram hjá hæstv. forsrh. Það virðist því morgunljóst að sú ákvörðun að leggja ekki eingöngu slíka staði til grundvallar, til að byrja með a.m.k., í viðræðum við Atlantsálshópinn séu runnar undan rifjum hæstv. iðnrh. og að hann hafi ekki til fulls viljað sætta sig við þá hugsun að Suðvesturland verði útilokað í sambandi við staðarval stóriðjunnar.
    Ef það er á hinn bóginn svo að hæstv. menntmrh. og Alþb. sættir sig við að stóriðjan rísi á Suðvesturlandi, eins og hæstv. fjmrh. sagði, en ég tek hann nú ekki sem talsmann þingflokks Alþb. satt að segja, eins og komið er, en ef það er rétt hjá formanni Alþb. að Alþb. geri það ekki að skilyrði að stóriðja
rísi utan Suðvesturlands þá eru líka orð hæstv. menntmrh. markleysa að þessu leyti.
    Í ræðu hæstv. menntmrh. er annars vegar talað um Stór-Reykjavíkursvæðið og hins vegar er talað um Suðvesturland, en má vera að það sé mismæli seinna skiptið, og ég skal ekki neita því að hann eigi rétt á leiðréttingu sinna orða.
    En nú langar mig aðeins til að segja í lokin um þetta atriði: Gæti nú ekki verið að ágreiningur stjórnarflokkanna um stóriðjumálin sé meiri en þeir vilja vera láta? Er ekki til í dæminu að eins fari fyrir okkur í sambandi við stóriðjumálin og nú hefur farið í sambandi við stjfrv. um stjórn fiskveiða, að einstakir stjórnarflokkar geymi fram á elleftu stund að lýsa

ágreiningi sínum í einstökum atriðum þannig að þessir tilburðir hæstv. iðnrh. til að ná fram þessum samningum muni að síðustu steyta á þessum sundurlyndissteini sem virðist vera hvarvetna undan ströndum þeirra flokka sem nú eru í ríkisstjórn?
    Um þau atriði önnur sem ég vísaði til hæstv. iðnrh. upplýsti hann að í aðalatriðum væri reiknað út frá 40 árum, eins og ég hygg að gert hafi verið af Landsvirkjun, og þá haldið þeim afskriftartíma sem hæstv. iðnrh. og hæstv. fjmrh. gagnrýndu svo mjög þegar frv. um skattskyldu orkufyrirtækja var hér til umræðu. Það sýnir einungis að þeir hafa vitkast síðan þá og eru annarrar skoðunar og ber að fagna því. Ég geri ekki athugasemd við það þó hæstv. iðnrh. vilji ekki í einstökum atriðum greina frá þeim verðtilboðum sem komið hafa vegna byggingar nýs álvers hér á landi.
    Ég vil svo þakka fyrir þessar umræður. Eftir standa orð menntmrh., hann hefur ekki séð ástæðu til þess við umræðurnar enn sem komið er að skýra nánar sín ummæli, hann hefur ekki kosið að skýra nánar hvað hann eigi við með því að Íslendingar hafi forræði yfir álfyrirtækinu, hann hefur ekki séð ástæðu til þess að ítreka eða leggja frekari áherslu á það skilyrði að álverið sé utan Reykjavíkursvæðisins og hann hefur ekki heldur vikið að öðrum þeim atriðum sem hann gerði svo glögglega grein fyrir í gær. Upp úr stendur í því sambandi að fjmrh. telur sig ekki vera talsmann Alþb. í þessu máli.