Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 1. þm. Reykv. fyrir undirtektir hans og ábendingar varðandi þetta frv. Það er alveg rétt að það er ástæða til þess að huga að hver verði staða þessarar sérstöku deildar lagmetis innan vöruþróunar- og markaðsdeildar Iðnlánasjóðs. Ég hef rætt málið við stjórnendur Iðnlánasjóðs og þeir eru reiðubúnir að taka þessi verkefni að sér. Ég tel það einmitt málinu fremur til gildis að setja það ekki í allt of strangar skorður, einfaldlega af því að fyrirtækin í lagmetisiðnaðinum greiða nú iðnlánasjóðsgjald og eiga rétt til fyrirgreiðslu úr Iðnlánasjóði eins og önnur iðnfyrirtæki og þess vegna eðlilegt að þau njóti þess þegar þau leggja inn í þann sjóð sérstakar eignir. Ég sé enga ástæðu til að ætla annað en að þetta verði vel og skynsamlega framkvæmt.
Vegna ábendingar hv. 1. þm. Reykv. um hugsanlega meðferð tapa sem hljótast kynnu af hlutafjáreign þessarar deildar þar sem hlutaféð væri tilkomið vegna breytinga á skuldum í hlutafé vil ég taka fram að ég tel það ekki skipta ákaflega miklu máli fyrir Iðnlánasjóð einfaldlega vegna þess að hann er ekki skattskyldur. Þó kann hann að verða það síðar eftir að reglur hefðu verið samræmdar og þá skiptir meginreglan auðvitað máli. Þess vegna er ástæða til þess að huga að því. En í sambandi við þetta mál er ekki á því sérstök þörf. Hins vegar er mjög brýnt að ljúka afgreiðslu málsins einfaldlega til þess að leysa þessi fyrirtæki og samtökin úr greiðslukreppu sem þau eru í. En það er hægt að gera um leið og frv. er orðið að lögum. Með því er ég ekki að segja að flana eigi að neinu í málinu. Ég tel að það hafi fengið góða athugun, bæði utan þings og innan og ítreka þá tillögu mína að hv. iðnn. þessarar deildar taki málið til athugunar.
Sveiflujöfnunarhugmyndir hv. 1. þm. Reykv. eru allrar athygli verðar en snerta ekki beinlínis það mál sem hér er rætt þótt vafalaust megi huga að þeim, eins og öðrum heimildum hlutafélagalaga og fyrirtækjaskattalaga. Reyndar er það mín skoðun að mjög mörg ákvæðanna til þess að ráða sköttum á einstökum árum hjá fyrirtækjum séu það rúm að ekki sé alveg víst að við bætum okkur mikið á því að auka við slíkum ákvæðum. Hins vegar þarf að fara yfir allan sveigjanleikann í fyrirtækjaskattlagningunni, ekki síst með þetta sjónarmið í huga, þó ekki sé víst að menn bæti sig á því að búa til nýtt nafn á heimildir til þess að flýta fyrningum eða haga skattlagningu og gjaldfærslu eftir afkomu.