Námsgagnastofnun
Miðvikudaginn 25. apríl 1990


     Frsm. menntmn. (Eiður Guðnason):
    Virðulegi forseti. Í meðförum Nd. var gerð smávægileg breyting á frv. til laga um Námsgagnastofnun sem þegar hafði verið afgreitt úr þessari hv. deild. Það er í rauninni ekki efnisbreyting heldur áhersluatriði.
    Í stað orðanna ,,kannanir og rannsóknir`` í 5. gr. frv. standi: og hefur frumkvæði að könnunum og rannsóknum. Ég hef rætt þessa breytingu við einstaka nefndarmenn í menntmn. þessarar hv. deildar og nefndin er sammála um að mæla með samþykkt frv. eins og það nú liggur fyrir.