Tilraunastöð Háskólans í meinafræði
Miðvikudaginn 25. apríl 1990


     Guðrún Agnarsdóttir:
    Hæstv. forseti. Aðeins nokkur orð vegna þess að ég sat í þeirri nefnd sem samdi frv. á sínum tíma. Ég vildi aðeins láta það koma fram hér í þessari umræðu að ég er mjög sátt við þær breytingar sem gerðar hafa verið á frv. Ég tel að þær hafi verið til bóta og eins og hv. frsm. og formaður nefndarinnar greindi frá taka þær af allan vafa um skilning og vilja nefndarmanna um stöðu og réttindi forstöðumanns. Ég vildi bara láta það koma fram að ég styð þessar breytingar eindregið og tel að þær hafi verið til bóta.