Margrét Frímannsdóttir:
Virðulegi forseti. Það fór svo við 2. umr. hér í hv. deild að tillaga hv. þm. Þorv. Garðars Kristjánssonar um að vísa frv. til laga um skipulag ferðamála til ríkisstjórnarinnar féll á jöfnum atkvæðum sem er að mínu mati einkennileg niðurstaða hv. þingmanna þar sem nú hefur verið lögð fram till. til þál. um heildarstefnumótun í ferðamálum, tillaga sem unnin er af nefnd skipaðri af hæstv. samgrh. og er til meðferðar hér í þinginu núna og mun að öllum líkindum fara til athugunar í nefnd í sumar. Það er því með ólíkindum að við hér í hv. efri deild erum á sama tíma og við vinnum að heildarstefnumótun í ferðamálum í sameinuðu þingi að afgreiða einn afmarkaðan þátt þessara mála.
Fyrsta gr. frv. um skipulag ferðamála á þskj. 1017 er svo sem ágæt og markmið frv., að vekja athygli sveitarstjórnarmanna á mikilvægi þessa málaflokks, en eðlileg vinnubrögð tel ég þó vera að vísa þessu frv. inn í þá vinnu sem á sér nú stað um heildarstefnumótun ferðamála í landinu.
Um 2. gr. frv. er það að segja að ég tel það afar einkennilegt að ætla að fara að festa í lögum heimild til sveitarstjórna til að skipa nefnd. Sveitarstjórnir hafa fulla heimild til að skipa nefndir um þau mál sem þær vilja fjalla um. Og hvað þá að nefndinni sé síðan samkvæmt lögum heimilt að kalla til sín áheyrnarfulltrúa. Það finnst mér líka alveg með endemum.
Á sama tíma og við erum að taka það fyrir hér á þingi að veita sveitarstjórnum heimildir til þess að skipa nefndir, þá var verið að dreifa hér áðan till. til þál. um heimild fyrir ríkisstjórnina til að fullgilda Evrópusáttmála um sjálfsstjórn sveitarfélaga. Og ég tel nú að þetta frv. sé ekki í þeim anda.
Að þessu sögðu hef ég leyft mér, herra forseti, að leggja fram till. til rökstuddrar dagskrár sem hljóðar svo:
,,Þar eð nefnd skipuð af samgrh. vinnur nú að athugun ferðamála, þar á meðal að endurskoðun laga um ferðamál, telur deildin eðlilegt að efnisatriði þessa máls komi til athugunar við þá heildarendurskoðun og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá.``