Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Mér þykir nú eiginlega miður að hv. 2. þm. Norðurl. e. skuli ekki vera hér inni í deildinni því að ég ætlaði að tala til hans sérstaklega vegna þeirra ummæla sem hann viðhafði hér í sinni furðulegu ræðu um Sementsverksmiðjufrv. hér áðan.
Varðandi þær athugasemdir sem hv. 4. þm. Vestf. gerði áðan við þá brtt. sem iðnn. hefur flutt, þ.e. að niður falli í 1. gr. orðin ,,við stofnun félagsins``. Hv. 4. þm. Vestf. hélt því fram að þessi brtt., ef samþykkt yrði, mundi hafa í för með sér að misræmi skapaðist milli 1. gr. og 8. gr. Umrædd 8. gr. hljóðar svo, með leyfi forseta:
,,Ríkissjóður getur ekki boðið hlutabréf í Sementsverksmiðjunni til sölu nema hafa til þess samþykki Alþingis með breytingu á b-lið 1. gr.``
Það er auðvitað grundvallarmisskilningur hjá hv. 4. þm. Vestf. að hér sé eitthvert misræmi á milli. Þetta fer fullkomlega saman og er ekkert athugavert við það. Ég held að hann hafi lesið eitthvað skakkt eða ekki séð þetta rétt vegna þess að þarna er hreint ekkert misræmi á milli. Menn skyldu hafa það í huga að þegar talað er um stofnun hlutafélags um Sementsverksmiðju ríkisins og þegar síðan er talað um að selja þessi hlutabréf, þá eru menn að tala um tvo aðskilda hluti. Hér er lagt til að stofnað verði hlutafélag um Sementsverksmiðju ríkisins til þess að breyta rekstrarforminu. Það eru engin áform uppi eða áætlanir um að selja þessi hlutabréf. Eins og nú háttar eru engin slík áform uppi.
Það er gert mjög víða erlendis og hefur víðast hvar verið gert að breyta ríkisfyrirtækjum í þessu gamla formi í hlutafélög. Í Svíþjóð sérstaklega og Noregi að einhverju leyti líka eru engin ríkisfyrirtæki til með sama rekstrarformi og Sementsverksmiðja ríkisins eða Síldarverksmiðjur ríkisins svo eitthvað sé nefnt, þ.e. hrein ríkisfyrirtæki, heldur eru ríkisfyrirtækin hlutafélög. Sænska ríkisútvarpið samanstendur af nokkrum hlutafélögum. Hlutabréfin eru öll í eigu ríkisins og mér vitanlega hefur aldrei komið til tals að selja þau. Menn telja hins vegar eðlilegt að svona fyrirtæki í eigu ríkisins lúti sömu rekstrarformum og önnur fyrirtæki. Það eru engin tengsl þar á milli af sjálfu sér þó að Sementsverksmiðjunni sé breytt í hlutafélag um að það eigi að bjóða hlutabréfin til sölu. Það er önnur sjálfstæð ákvörðun og ákvörðun sem Alþingi verður að taka, samkvæmt þessum lögum. Það eru tvö ólík mál og stendur ekki til að taka slíka ákvörðun að ég best veit. Og þess vegna ítreka ég það að það er grundvallarmisskilningur hjá hv. 4. þm. Vestf. að þarna sé eitthvert misræmi á milli, það er ekki. Þetta fer ágætlega vel saman, enda hygg ég að lögfróðir menn hafi skoðað frv. með tilliti til þeirrar brtt. sem hér hefur verið flutt.
Hv. 2. þm. Norðurl. e. Halldór Blöndal talaði í þá veru að batnandi mönnum væri best að lifa og vissulega er það satt. Og nú væru menn tilbúnir til að samþykkja það sem þeir hefðu ekki viljað samþykkja þegar þáv. iðnrh. Sverrir Hermannsson flutti hér í
þessari deild, með stóryrðum nokkrum, eins og ýmsir muna sjálfsagt, frv. um stofnun hlutafélags um Sementsverksmiðju ríkisins. Það er alveg rétt, það frv. var fellt í þessari hv. deild. Ég greiddi atkvæði gegn
því. Og það gerðu, hygg ég, allir þingmenn Vestlendinga sem hér áttu sæti burt séð frá því hvort þeir áttu aðild að ríkisstjórn eða ekki. Sannleikurinn er nefnilega sá að það frv. var í mörgum atriðum á annan veg en þetta. Heimaaðilar voru ekki sáttir við það frv. á sínum tíma. Bæjarstjórn Akraness var það ekki og ég hygg að starfsmenn Sementsverksmiðjunnar hafi ekki verið það heldur. Báðir þeir aðilar hafa lýst stuðningi við þetta frv. af því að þetta frv. er í mörgum atriðum ólíkt því frv. sem hæstv. þáv. iðnrh. Sverrir Hermannsson flutti hér á þingi.
Hv. þm. Halldór Blöndal, og vildi ég mælast til að einhver þingmaður athugaði fyrir mig hvort hann situr hér inni í hliðarherbergi því að ég vil gjarnan að hann heyri þau orð sem ég vildi beina til hans, en hann gerði hér að umtalsefni afkomu Sementsverksmiðjunnar. Það er alveg rétt að í áranna rás hefur hún verið misjöfn. Oft hefur verið um að kenna því að stjórnvöld hafa ekki viljað viðurkenna nauðsyn á hækkuðu sementsverði og haldið því niðri og synjað um verðhækkanir. Þess vegna safnaði þetta fyrirtæki skuldum. Hv. þm. talaði um að þetta væri dæmi um einokunarfyrirtæki sem óprúttnir stjórnmálamenn kæmu fram við með þeim hætti sem hann lýsti, þ.e. að láta það safna skuldum og synja því um verðhækkanir.
Ég hef það fyrir satt frá þeim sem betur þekkja til þess tíma en ég að aldrei í sögu Sementsverksmiðjunnar hafi afkoma hennar verið jafnbágborin og árin 1974--1978. Og hverjir fóru þá með stjórn landsins, hv. 4. þm. Vestf.? Þá var hér við völd ráðuneyti Geirs Hallgrímssonar, 1974--1978. Og hver skyldi hafa verið iðnrh. allan þann tíma? Ætli það hafi ekki verið varaformaður Sjálfstfl., dr. Gunnar Thoroddsen? Afkoma Sementsverksmiðjunnar hefur aldrei verið lakari en þau ár, sjaldan eða aldrei verið lakari.
Það er svo rétt að hin seinni árin hefur afkoma fyrirtækisins batnað mjög. Á sl. ári varð að vísu nokkurt tap sem m.a. helgaðist af því að sementssala varð næstum því 14% minni en árið áður vegna minni framkvæmda. Gengisþróun var mjög óhagstæð. Fjármagnskostnaður varð mikill, vextir hækkuðu mjög erlendis, afskrifaðar voru ýmsar eignir sem í raun voru ónýtar og verðhækkanir komu of seint. Aðalhækkunin á verði sements kom ekki fyrr en 1. sept. en þá var aðalframkvæmdatíminn liðinn hjá. Hins vegar bendir nú allt til þess að á þessu ári, miðað við að sementsverð hækki um 12%, verði afkoma fyrirtækisins í járnum miðað við eðlilega sölu. Ef sala eykst þannig að fasti kostnaðurinn dreifist á fleiri sementstonn, eins og vonandi gerist þegar hér verður farið að virkja í stórum stíl og sement --- kemur nú hv. 2. þm. Norðurl. e. vonum seinna í salinn og sé ég mig knúinn til að endurtaka stuttlega nokkuð af því sem ég mælti til hans hér áðan, en
hann má ekki vera að því að hlusta greinilega og hverfur úr salnum að nýju. ( SkA: Hann kærir sig ekki um að hlusta.) Eða kærir sig ekki um að hlusta kannski, svo að við höfum það nú þannig.
Ef sementssalan fer aftur yfir 120 þús. tonn mun þetta fyrirtæki skila góðri afkomu, eins og áreiðanlega mun gerast verði ráðist í þær virkjunarframkvæmdir sem nú eru á döfinni. Við eigum líka að hugsa til þess að nota sement í auknum mæli til vegagerðar sem er ódýrasta lausnin þegar til langs tíma er litið. Það mundi einnig hafa hagstæð áhrif á rekstur þessa fyrirtækis. Hv. 2. þm. Norðurl. e. talaði um að sementsverð væri hærra hér en þyrfti að vera. Það er að sumu leyti alveg rétt vegna þess að hér eru opinberar álögur á sement meiri en í flestum öðrum löndum, virðisaukaskattur og vörugjald, og svo er hér jöfnunarverð á sementi. Að opinberri ákvörðun er hér jöfnunargjald á sementi þannig að það er selt á sama verði um land allt, með flutningsjöfnunargjaldi. Auðvitað hækkar það verðið, t.d. hér á þessum markaði sem býr við nálægð við verksmiðjuna. Það vita allir. En þetta er ákvörðun sem hefur verið tekin og ég veit ekki hvort hv. 2. þm. Norðurl. e. var að leggja til með þessum orðum sínum að flutningsjöfnunargjaldið yrði aflagt. Ég geri ekki ráð fyrir að það mundi lækka sementsverð í hans kjördæmi.
Ég ítreka stuðning minn við þetta frv. en taldi nauðsynlegt, herra forseti, að leiðrétta þessi atrðiði sem fram komu, einkanlega í ræðu hv. 2. þm. Norðurl. e.