Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég veit satt best að segja ekki hvort ég get túlkað það svo að ég sé að tala hér um þingsköp, ég hef efasemdir um það. En hér hefur hafist þingskapaumræða. Að því er varðar þá ásökun hv. þm. að ég hafi svarað fréttamönnum um ákveðin atriði þá er það nokkuð óvenjulegt að álasa mönnum fyrir það. Þegar fréttamenn eru með í höndum upplýsingar er varða einhver mál og eru að fjalla um þau þá er það nú svo að oft er betra að ræða þau mál við þá. Ég tel að ég hafi gert það með þeim hætti að það gæti vart verið ámælisvert.
Að því er varðar hitt atriði málsins, að tiltekinn starfsmaður sjútvrn., sem er ráðinn í tímabundið starf, hafi rætt við Ríkisútvarpið þá er það ekki svo í sjútvrn., og ég vænti ekki heldur í öðrum ráðuneytum, að aðilum sem þar starfa sé bannað að tjá sig um þau mál sem þeir hafa áhuga fyrir.
Ég vissi ekki um þetta viðtal. Það er að sjálfsögðu á ábyrgð þess manns, ég veit ekki gjörla hvað þar fór fram. En ég vænti þess að ekki sé til þess ætlast af ráðherrum að þeir leggi bann við því að starfsmenn sem ráðnir eru til starfa komi fram með skoðanir sínar. Það væri brot á tjáningarfrelsi og skoðanafrelsi í þessu landi.