Frumvarp um stjórn fiskveiða
Miðvikudaginn 25. apríl 1990


     Karvel Pálmason:
    Virðulegi forseti. Ég held að þetta eigi nú miklu frekar að vera utandagskrárumræða en umræða um þingsköp því málið er allt þannig búið. Ég tek undir gagnrýni hv. þm. Skúla Alexanderssonar því vinnubrögðin, ekki bara hjá hæstv. sjútvrh., heldur og hjá þeim ráðherrum sem hafa fjallað um þetta mál, eru þannig að það er engu líkara en þetta sé bara ráðherramál, aðrir þurfi ekki nálægt því að koma. Það hefur verið greint frá því í fjölmiðlum að ráðherrarnir þrír séu búnir að ná samkomulagi um málið. ( Gripið fram í: Hvaða þrír?) Ja, hvaða þrír? Það væri kannski ástæða til að spyrja hv. þm. Stefán Guðmundsson, formann sjútvn., um það: Hvaða þrír? Það væri gott að fá það upplýst.
    Mér finnst að um svona mál eigi ekki að haga vinnubrögðum með þessum hætti. Þetta er stórmál, þetta er viðkvæmt á margan hátt og það er ekki bara þriggja ráðherra, hversu góðir sem þeir kunna að vera, að ráðsmennskast með svona mál, og að þjóðinni sé talin trú um að það séu þeir sem ráði ferðinni í þessum efnum. Það eru 63 hv. þm. hér á Alþingi sem eiga og verða að taka afstöðu til málsins. Það eru ekki bara ráðherrar, það á líka að koma til okkar, hvaða afstöðu við kunnum að hafa til málsins.
    Ég tek því mjög undir þessa gagnrýni en vil ekki beina henni sérstaklega til hæstv. sjútvrh., það eru fleiri ráðherrar sem eiga þessa gagnrýni skilið. Þetta eru óeðlileg vinnubrögð og það er ekki hægt að una því að ráðsmennskast sé með svona mál á höndum tiltölulega fárra einstaklinga, þó að ráðherrar séu.