Egill Jónsson:
Herra forseti. Ég hlýt að fagna því að þetta frv. skuli hafa verið lagt hér fram og færa landbrh. þakkir fyrir að hafa forgöngu þar um. Ég kem til með að fjalla um málið í nefnd þar sem ég á sæti í landbn. Ed. Þar gefst mér að sjálfsögðu kostur á að kynna mér nánar efni frv. og hafa áhrif á afgreiðslu þess. Ég ætla því ekki að orðlengja hér mikið um málið við þessa umræðu.
Ég tek sérstaklega undir það sem hæstv. landbrh. sagði í lok ræðu sinnar, að það væri þýðingarmikið að koma hér fram með sannfærandi hætti gagnvart bændum á Fljótsdalshéraði. Það er ekki meining mín að fara að efna hér til eldhúsdags, fjarri því, en hitt er fullkomlega ljóst að bændur á Fljótsdalshéraði urðu fyrir vonbrigðum við afgreiðslu fjárlaga því að þar treystu menn því sem sagði í Þingvallasamþykkt ríkisstjórnarinnar um stórátak í skógrækt á Austurlandi. En þótt ekki beri að vanmeta þá fjárveitingu út af fyrir sig miðað við það sem gengið hefur til þessara verkefna á síðustu árum, þá var hún ekkert í samræmi við það sem áætlanir gerðu ráð fyrir og bændur á Austurlandi voru í góðri trú um að yrði að raunveruleika. Ég hef orðið var við að það mundi auka enn á vonbrigði manna og rýra trú bænda á Fljótsdalshéraði á þessum áformum ef frv. næði ekki fram að ganga.
Ég hef litið hér til einstakra ákvæða í frv. og það sem vekur sérstaka eftirtekt í þessu efni er að ekki er kveðið á um fjárveitingar en áætlanir án fjárveitinga eru að sjálfsögðu ekki mjög haldmiklar. Fyrir því höfum við sára reynslu bæði fyrr og síðar.
Ég ætla ekki að tefja þessa umræðu frekar en vil einungis að það komi hér fram að að því marki sem ég get greitt fyrir framgangi þessa máls á Alþingi mun ég að sjálfsögðu gera það þótt mér sé hins vegar fullkomlega ljóst að vissir annmarkar hljóta að vera á því að afgreiða þetta mál svona afar síðla þings.