Héraðsskógar
Miðvikudaginn 25. apríl 1990


     Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
    Hæstv. forseti. Tímans vegna mun ég reyna að stytta mjög svör mín, enda get ég upplýst hv. síðasta ræðumann um að það eru væntanleg til hans í bréfi svör við ýmsum spurningum sem þingflokkur Alþfl. bar fram og eru flestallar efnislegar og ágætar. Síður en svo höfum við haft á móti því að undirbúa og taka saman ýmislegt efni sem eru þar svör við. Ef ég má leyfa mér að nefna bara örfá atriði til skýringar er í fyrsta lagi því til að svara að sérstök lög voru að okkar mati nauðsynleg, m.a. vegna þess að núgildandi skógræktarlög eru mjög gömul. Það vantar inn í þau í raun og veru ákvæði sem gera nytjaskógrækt í þessum hlutföllum mögulega. Verkefnið er auk þess nokkuð sérstætt og stórt.
    Varðandi það hvort í raun og veru sé komin á fót svona bara fram hjá og utan og ofan við kerfið einhvers konar ríkisstofnun, þá er svo ekki og fjarri því. Hér er fyrst og fremst um verkefni að ræða sem hefur fengið fjárveitingu á fjárlögum og aukafjárveitingu á síðasta ári og ákveðinn starfsmaður hefur verið að vinna að því verkefni. Hann er að sjálfsögðu ekki stofnun og lýtur bara beint stjórn sérstakrar nefndar eða stjórnar sem ráðherra kom á fót til að vinna að verkefninu og síðan heyrir undir ráðherra beint. Hann hefur starfsaðstöðu hjá Skógrækt ríkisins á Fljótsdalshéraði og öllum tilkostnaði við þetta hefur verið haldið í lágmarki.
    Ástæðan fyrir því að Fljótsdalshérað sérstaklega varð fyrir valinu --- þær eru reyndar margar. Ég nefndi nokkrar þeirra, svo sem eins og það að þar er langmest og best reynsla af skógrækt í landinu. Þar vita menn það sem menn kannski vita ekki með sömu vissu annars staðar, að ákveðnar trjátegundir vaxa til nytja með mjög viðunandi hætti, sérstaklega auðvitað lerkið, en reyndar eru kynslóðir af furu og greni sem dafnað hafa dável á Hallormsstað einnig.
    Á Fljótsdalshéraði eru skilyrði fyrir samfellda skógræt þar sem tugir bænda,
jafnvel í heilum hreppum, eru tilbúnir til þátttöku. Það þýðir að girðingarkostnaður og ýmislegt annað verður miklum mun minni en ef einstakir bændur eru að girða af hver hjá sér.
    Ég tek undir það að það verkar nokkuð sérkennilega ákvæðið sem er í 1. gr. frv. um að verkefninu skuli einnig falið að sjá um umhirðu þess skóglendis sem er á Héraði, en þar er sá vandi á höndum í raun og veru að hv. Alþingi sjálft hefur í sinni samþykkt mælt svo fyrir að einmitt þetta skuli gert og í þingsályktuninni frá 1988 segir einmitt að áætlunin skuli taka til ræktunar nytjaskóga og viðhalds og hirðingar skóglendis sem fyrir er. Ég hygg að þetta atriði væri rétt að skýra nánar og þannig að að sjálfsögðu skuli verkefnið ekki vasast í þeim skógum sem eru á lendum Skógræktar ríkisins en taka til þess skóglendis sem er á landi bænda. Það fyndist mér eðlilegasta skiptingin.
    Um áætlunina: Hún verður væntanlega unnin af

verkefninu sjálfu sem slíku, starfsmanni þess í samráði við skógarbændur á Héraði, Skógrækt ríkisins og landbrn. og þannig hafa þau drög sem hér eru verið unnin. Um 5% af heildarframleiðsluverðmæti, þar sem reyndar mun standa, eins og réttilega var nefnt af síðasta ræðumanni, heildartekjur í grg. Það er nú ónákvæmni og ég tel að hið rétta sé að halda sig við heildarframleiðsluverðmæti og það ætti í raun og veru að standa á báðum stöðum. Það er fullkomlega réttmæt ábending að þarna er um ósamræmi að ræða. Það má út af fyrir sig segja að þar væru margar leiðir færar en hér er í raun og veru valið að fylgja fordæmi nágrannaþjóðanna sem hafa endað með þessari tilhögun. Það er út af fyrir sig alveg rétt að það mætti hugsa sér að það væri einfaldlega sú kvöð á hverjum og einum bónda, eða þeim sem væru að nytja skóga framtíðarinnar á hverjum tíma, að hann ætti að sjá um endurnýjun þeirra og í raun og veru er það það sem þetta ákvæði felur í sér eins og kemur fram í því að þetta er heimildarákvæði allt að 5%, sem sagt að þeim mörkum sem þarf til að kosta endurnýjunina á hverjum tíma.
    Um 15 prósenta ákvæðin er því til að svara að það er nú í okkar skilningi ekki skattur heldur í raun og veru hlutdeild ríkisins í þeim hagnaði sem á hverjum tíma kann að koma af verkefnunum. Um vinnulöggjöfina eru ýmsir fróðari en ég en ég hygg þó að þess séu mörg fordæmi að ákveðin svæði njóti til að mynda forgangs til vinnu og telst ekki misbeiting og hér yrðu einmitt á ferðinni þeir sem væru íbúar á viðkomandi svæði, í viðkomandi hreppum sem fengju þarna forgang. Spurningin gæti þá orðið um það hvort rétt væri að þeir hefðu forgang umfram aðra íbúa viðkomandi hrepps. Þá mætti enn fremur beita þeim rökum að á ferðinni væru þeir menn sem hefðu faglega bestar aðstæður til að sinna þessum störfum, hefðu þekkingu á staðháttum og væru ræktunarmenn, væru í þeim störfum og þar af leiðandi væru komnar forsendur til að velja þá úr eða taka þá fram fyrir aðra.
    Um gróðurhúsamálin hefur talsvert verið rætt og það er reyndar eitt það atriði sem hafa verið nokkuð skiptar skoðanir um á köflum, fyrst og fremst um það hvort rétt væri að stefna á rekstur stórra gróðurhúsa á vegum Skógræktar ríkisins eða annarra aðila eða hvort sú leið væri fær að bændur sjálfir önnuðust plöntuuppeldið og þá jafnvel í smáum stíl hver fyrir sig á sínum
jörðum. Í þessu efni er í rauninni ekki komin niðurstaða að öllu leyti en það liggur þó fyrir að langfljótlegasta og auðveldasta aðferðin til að auka afköstin við plöntuframleiðslu í byrjuninni, en það er jú flöskuháls eins og stendur, er að stækka núverandi aðstöðu Skógræktar ríkisins á Hallormsstað og það verður gert í fyrsta áfanga. Það verður síðan skoðað í framhaldinu hvort einstakir bændur eða þá bændur í sameiningu í gegnum stærri einingar geti tekið að sér að verulegu leyti og jafnvel öllu þennan þátt og mundi þá einfaldlega Skógrækt ríkisins nýta fyrir sjálfa sig þá aðstöðu sem hún kemur upp nú til

bráðabirgða fyrir verkefnið.
    Um kvaðir á bændur vísa ég m.a. í uppköst að samningi sem er síðasta fylgiskjal með frv. Þar eru lagðar vissar kvaðir á bændur og þær eru að taka frá þetta land og hafa það undir skógræktinni og um það yrði gerður bindandi samningur sem bændurnir væru skuldbundnir af til móts við ríkið að sínu leyti. Og í því fælust kannski kvaðirnar meira en að þær komi hér inn í lagatextann.
    Gróðrarstöðvar eru reyndar því miður ekki margar á Fljótsdalshéraði og til þessa hefur Skógrækt ríkisins verið næsta ein um það að framleiða þar skógarplöntur til sölu. Það er fremur að það litla sem er af gróðurhúsum á því svæði sé þá í ávöxtum eða grænmeti. Ég hygg að Skógrækt ríkisins á Hallormsstað hafi verið nánast eini aðilinn sem eitthvað kveður að í plöntuframleiðslu á þessu svæði og samkeppni því í raun og veru ekki fyrir hendi þar.
    Hvað snertir hreindýrin þá er það vissulega nokkurt vandamál eða menn hafa haft af þeim áhyggjur. Það hefur reyndar lengi verið svo að nokkrir skaðar hafa orðið af hreindýrum í skóglendi eystra, en áraskipti að því hversu alvarlegt það tjón er. Það mál er nú til sérstakrar skoðunar. Tillögur hafa komið frá heimamönnum til menntmrn. sem enn fer með málefni hreindýra þó að því ljúki nú vonandi mjög fljótlega. Þegar ég sé hér umhvrh. fyrir framan mig leyfi ég mér að skjóta þessu inn í. Tillögur um þetta eru sem sagt til skoðunar bæði í landbrn. og menntmrn., þ.e. ráðuneyti hreindýra, eins og ég kalla það stundum þegar ég er að skensa vin minn, menntmrh. Reyndar er það vel þekkt víða að, til að mynda frá hinum Norðurlöndunum, að elgar og fleiri dýr valda nokkru tjóni eða usla í skóglendi og er svo sem ýmsum brögðum beitt til að reyna að draga úr því.
    Er ég nú senn að koma að lokum þessarar tölu, hæstv. forseti. Um landgræðsluskóga er því til að svara að það verkefni er í raun alls óskylt þessu. Þar er um að ræða skógrækt sem er hugsuð á öðrum grunni. Plönturnar eru fyrst og fremst birki og víðir, þ.e. ekki beinlínis nytjaplöntur heldur plöntur sem klæða landið og eru brautryðjendur fyrir aðrar sem síðar gætu komið til og orðið að nytjaskógum. Það verkefni er sérstaklega helgað afmæli Skógræktarfélags Íslands og er í raun og veru undir forustu þess en í samvinnu við Skógrækt ríkisins og landbrn. og fleiri góða aðila. Og ástæðan, hvers vegna ekki Skógrækt ríkisins sem einfaldlega sæi um þetta atriði? Það var ósk heimamanna, og það er reyndar skoðun fleiri að það sé að mörgu leyti heppilegt að þetta sé sjálfstætt verkefni. Þetta er í raun hugsað sem búskapur. Því er ætlað að byggja á þátttöku bænda. Það var talið eðlilegt að þeir væru afgerandi í meðferð málsins. Þátttaka Skógræktar ríkisins er hins vegar fléttuð inn í málið á ýmsum stigum, til að mynda er það hér í lögunum að Skógrækt ríkisins skuli annast faglega fyrirgreiðslu og ráðgjöf og Skógrækt ríkisins mun eiga mann í þeirri verkefnisstjórn sem stýrir verkefninu. Ég tek það fram og undirstrika að hér er ekki verið að búa til stofnun eða síðan stofnanir í hverjum

landshlutanum á fætur öðrum, heldur er hér verið að setja upp verkefni. Og auðvitað þurfa einhverjir að halda utan um verkefnið og svona viðamikið verkefni kallar a.m.k. á undirbúningsskeiðinu á einhvern starfskraft en síðan ættu væntanlega, þegar það er komið í fullan gang og farið að rúlla svona af sjálfu sér, bændurnir sjálfir að geta séð alveg um þá þjónustu sem í kringum það yrði. Og það er einmitt mín ósk og ég hef gert mér sérstaklega far um að reyna að byggja málið þannig upp að sú vinna sem af þessu skapast, þjónusta við þetta, rekstur tækja eða því um líkt, verði á hendi bændanna sjálfra og þátttakendanna í skógræktarverkefninu.
    Herra forseti. Ég geri mér grein fyrir að það er til mikils mælst að ætla að afgreiða þetta mál hér á fáum dögum sem eftir lifa þingsins. Nú vitum við kannski ekki um það alveg fyrir víst, það gæti eitthvað bæst við, en í öllu falli væri mér það kærkomið að hv. landbn. tæki málið til skoðunar og færi m.a. í gegnum ágætar athugasemdir sem hér komu fram og spurningar og sendi það út til umsagnar þannig að menn væru þá eitthvað betur á vegi staddir til að taka upp þráðinn að hausti ef svo fer.