Stjórnarfrumvarp um áburðarverð
Miðvikudaginn 25. apríl 1990


     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Herra forseti. Ég hef þegar gert grein fyrir því hvers vegna ríkisstjórnin valdi þá leið að leita eftir samþykki Alþingis fyrir áburðarverði. Það er að sjálfsögðu óvenjulegt, en þetta er liður í kjarasamningum sem voru gerðir og mjög mikilvægur þáttur í þeim. Vitanlega geta menn sagt að þetta hefði átt að fylgja því frv. um kjarasamninga sem var flutt og samþykkt. Ég get alveg tekið undir það, það hefði átt að gera það.
    Hins vegar, þegar þetta mál var vandlega athugað, þá sýndist ríkisstjórninni að þess mundi varla vera þörf því að Áburðarverksmiðjan gæti þolað umrædda hækkun. Að sjálfsögðu þýddi það meiri lántöku vegna þeirra framkvæmda sem Áburðarverksmiðjan stendur í, þ.e. byggingu nýs ammoníaksgeymis. En ég vil ekki fara út í nánari málefnalega umræðu í þingskapaumræðu um þetta mál, tel það ekki viðeigandi.
    Hitt er svo rétt að sjálfsögðu að þingheimur á rétt á því að vita hvaða hugmyndir ríkisstjórnin hefur um þinglok. Ég hélt satt að segja að eftir allmarga fjölmenna fundi með fulltrúum stjórnar og stjórnarandstöðu lægi þetta nokkuð ljóst fyrir. M.a. hef ég rætt við hv. 1. þm. Suðurl. um það mál. Ég hef litið svo á að það væri fullt samkomulag um að leitast við að ljúka þingi 4. eða 5. maí. Hins vegar hefur alltaf legið fyrir að það eru sérstaklega eitt eða tvö mál sem ráða úrslitum um það. Það er fyrst og fremst stjórn fiskveiða og Úreldingarsjóður, sem hafa nokkuð fylgst að. Að lausn þeirra mála hefur nú verið unnið og ég er að gera mér vonir um að a.m.k. annað þeirra mála losni úr nefnd í dag. Þá geta menn að sjálfsögðu séð betur hvort okkur tekst að standa við þessa áætlun.
    Ég veit að hv. þm. er kunnugt að mjög mikið af þessum 40 mála lista hefur svona a.m.k. með þögninni verið samþykkt milli manna að fari ekki í gegn og verði ekki til að tefja þinghaldið. Ég held að meginniðurstaðan sé sú að það sé fyrst og fremst stjórn fiskveiða sem ráði úrslitum.
    En ég vil svo taka undir það með hv. 1. þm. Suðurl. að það er vitanlega ekkert því til fyrirstöðu að halda áfram lengur. Við höfum reynsluna af því þegar við héldum þinginu fram til 21. júní, en mér heyrðist ekki mikill áhugi á því. Ég vil fyrir mitt leyti standa, eftir því sem frekast er unnt, við það bráðabirgðasamkomulag, ég verð að kalla það það, sem hefur verið gert. Og við skulum vona að takist að halda þeirri tímasetningu.