Stjórnarfrumvarp um áburðarverð
Miðvikudaginn 25. apríl 1990


     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Herra forseti. Ekki ætla ég að fara að taka upp þann sið hv. 1. þm. Suðurl. að vera hér með útúrsnúninga úr ræðustól sem hann tíðkar jafnt og þétt. Ég sagði mjög greinilega áðan að það mun ráða úrslitum hvort tekst að standa við tímasetninguna 4. eða 5. maí að þessi tvö mál afgreiðist, þ.e. stjórn fiskveiða og Úreldingarsjóður. Ég sagði ekkert um það að þetta væru einu málin sem hér ættu að fara í gegn. Sem betur fer gengur mjög vel að afgreiða mál í þessari deild og virðist ekki vera nein hindrun. Það er að vísu ekki svo í hv. Ed.
    Ég er ekki með þennan lista hér og teldi reyndar á þessu stigi ekki rétt að fara að rökræða þann lista. Við höfum farið yfir hann vandlega á þeim fundum sem við höfum setið og ég veit að sú vitneskja hefur verið borin undir þingflokk sjálfstæðismanna. En ég vona, ef reynist svo sem horfir að þessi mál komist út úr deild, að þá getum við aftur sest að. Ég fagna því svo sannarlega ef samningur tekst, allsherjarsamningur milli stjórnar og stjórnarandstöðu um afgreiðslu þingmála og um þinglok og ekki skal standa á mér að stuðla að slíkri samningagerð.