Fjarvera ráðherra
Miðvikudaginn 25. apríl 1990


     Forseti (Hjörleifur Guttormsson):
    Forseti vill upplýsa að honum hefur verið tjáð af formanni þingflokks Alþfl. að hæstv. utanrrh. sé á leiðinni til bæjarins og muni koma með Akraborginni um þrjúleytið, Akraborgin muni leggja að hér í Hólminum um þrjúleytið og þá kemur hæstv. ráðherra væntanlega fljótlega til þingfundar þannig að taka megi það mál fyrir sem frestað var umræðu um.