Forseti (Hjörleifur Guttormsson):
Forseti vill upplýsa að þingdeildin á að vera vel starfhæf. Hér eru samkvæmt yfirliti 35 hv. þm. hv. deildar í þinghúsi, þar af 19 stjórnarliðar og 16 úr stjórnarandstöðu. Forseti væntir þess að brátt megi halda hér áfram með umræður eftir dagskrá, af nógu er að taka.