Fjarvera ráðherra
Miðvikudaginn 25. apríl 1990


     Jón Sæmundur Sigurjónsson:
    Virðulegi forseti. Ég verð að segja að ég skil lítt í upphlaupi þeirra 1. þm. Suðurl. og 1. þm. Reykn. sem kvarta sáran undan því að þingmenn stjórnarliðs séu valdir að því að þingstörf séu tafin hér í deildinni. Ég veit ekki betur en að í þeirra málflutningi hafi komið fram og verið sérstaklega tekið fram að það sé skortur á því að þingmenn stjórnarliðsins sitji í þingsölum. Það fer varla saman við það að þeir séu jafnframt að tefja þingstörf. Ég hef heldur ekki orðið var við það --- og vil mótmæla því eindregið --- að ráðherrar Alþfl. hafi sérstaklega orðið til þess að tefja þingstörf að undanförnu. Það hefur ekki sérstaklega borið á því. Nú er kunnara en frá þurfi að segja að ráðherrar hafa auðvitað mörgum öðrum skyldustörfum að gegna en að sitja í þingi. Þó að það sé að sjálfsögðu þeirra skylda þá kemur það auðvitað oft fyrir að þeir þurfa að vera fjarverandi og sérstaklega á það við um utanrrh. öðrum fremur.
    Hvað varðar þetta mál sérstaklega sem hér er til umræðu þá eru það fulltrúar Alþfl. sem standa að 2. minnihlutaálitinu. Þar kemur álit Alþfl. mjög greinilega fram og ég á ekki von á að utanrrh., sem formaður Alþfl., hafi aðrar meiningar í því máli. Það er því ekki sérstök ástæða til þess að tefja málið þess vegna. ( Forseti: Forseti vill benda hv. ræðumanni á að hér er umræða um þingsköp en ekki efnisleg umræða um þingmál.)
    Virðulegur forseti. Ég er einmitt að ræða um þingsköp, um meðferð þessa máls, þannig að ég tel mig vera að ræða um þingsköp í þessu máli. Það getur vel verið að forseti sé annarrar skoðunar, en ég tel mig vera að ræða um meðferð málsins og það hvernig það má ná fram að ganga. Af því tilefni vil ég taka fram að álit Alþfl. hefur komið fram. Því tel ég enga ástæðu til þess að málið sé tafið vegna þess að beðið sé eftir utanrrh., formanni Alþfl., að hann lýsi sínu áliti á þessu máli. Hann er sammála því áliti sem fram hefur komið. Þar er meira að segja notaður texti sem fulltrúi Sjálfstfl. í viðkomandi nefnd hefur notað og samið þannig að rík ástæða er til að ætla að þessir báðir flokkar séu sammála um framgang þessa máls og ástæður þess.