Frsm. 2. minni hl. fjh.- og viðskn. (Friðrik Sophusson):
Herra forseti. Hér er til umræðu mál sem er gamall kunningi okkar í hv. Nd. og fjallar um það að aftur verði snúið til þess sem ákveðið var þegar staðgreiðslukerfi skatta var tekið upp að allir svokallaðir smáskattar, nefskattar, yrðu sameinaðir í staðgreiðslunni. Á sínum tíma var ráð fyrir því gert að framlag einstaklinga í Framkvæmdasjóð aldraðra, nefskatturinn, yrði fellt niður og kæmi inn í staðgreiðsluna og var skattprósentan miðuð við það á sínum tíma. Það hefur verið rakið mjög nákvæmlega hér í ræðum þeirra sem talað hafa í þessu máli hvernig kúvent var á sínum tíma og með hvaða hætti það gerðist.
Hæstv. utanrrh., formaður Alþfl., og reyndar aðrir alþýðuflokksmenn lýstu því yfir á sínum tíma að það hefði verið slys að hleypa stjfrv. fram. Í því stjfrv. var gert ráð fyrir því að tekinn yrði upp á ný nefskattur án þess að skatthlutfallið yrði lækkað. --- Mér þætti vænt um, virðulegur forseti, ef möguleiki væri á því að hæstv. fjmrh. yrði viðstaddur þessa umræðu. ( Forseti: Það verða gerðar ráðstafanir til þess að hafa upp á hæstv. fjmrh. en á meðan vænti ég þess að ræðumaður treysti sér til þess að halda áfram máli sínu.) Það skal ég gera, virðulegur forseti.
Það kom fram í máli hv. 17. þm. Reykv. að það væru fleiri skattar sem á sínum tíma hefðu verið lagðir niður: sóknargjald, kirkjugarðsgjald, sjúkratryggingagjald, auk þessa sérstaka gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra. Að vísu hefur það gerst frá því að þessi gjöld voru sameinuð í staðgreiðslukerfinu að hæstv. ríkisstjórn hefur lækkað, með heimild í lánsfjárlögum, þá upphæð sem rennur til þeirra mála sem um er að ræða. Urðu nokkrar umræður um það fyrir síðustu jól við afgreiðslu lánsfjárlaga, einkum er varðaði sóknargjaldið og kirkjugarðsgjaldið. Þá kom í ljós að dóms- og kirkjumrn. beitti sér fyrir lækkun framlagsins til þess að þóknast ríkissjóði og hæstv. fjmrh. og var það gert að nokkru leyti í samráði við kirkjunnar menn. ( Forseti: Forseta er tjáð að fjmrh. sé á næstu grösum og vænti ég þess að hann komi hingað til að hlýða á mál ræðumanns innan mjög skammrar stundar.) Ég þakka fyrir, hæstv. forseti.
Eins og öllum er kunnugt þá hefur enginn einn stjórnmálamaður lagt jafnmikla áherslu á það og hæstv. utanrrh., fyrrum fjmrh., enn verandi formaður Alþfl., að hann hafi unnið kraftaverk þegar honum tókst, á honum hefur oft mátt skilja að hann hafi nánast verið þar einn að verki, að koma staðgreiðslukerfinu á. Ekki skal ég fara út í þá sálma hér en þó er ljóst að hæstv. ráðherra lagði mikla áherslu á að sameina í staðgreiðslukerfinu ýmsa þá nefskatta sem áður voru á lagðir og innheimtir með öðrum hætti.
Hæstv. ráðherra hefur, eins og öllum er kunnugt, lýst því yfir að það hafi verið slys á sínum tíma að Alþfl. féllst á að flutt yrði frv. og samþykkt um sérstakan nefskatt í Framkvæmdasjóð aldraðra. Hann
notaði þau orð á sínum tíma að ekki hefði verið unnt að ná öðru samkomulagi en því að fresta gildistökunni og sagði orðrétt, með leyfi forseta:
,,Við það vinnst tími til að halda öðruvísi og með traustari tökum á málinu í framhaldinu.``
Síðan hefur lítið annað gerst í þessu máli en að hæstv. fjmrh. hefur haldið sinni stefnu ótrauður áfram og virðist ekki taka mark á orðum hæstv. utanrrh. Þegar þetta mál var til umræðu í hv. fjh.- og viðskn. Nd. gerðist það að sex nefndarmenn tóku afstöðu til þessa máls. Stjórnarandstaðan, þ.e. fulltrúar Sjálfstfl. og fulltrúi Kvennalistans, lagði til að frv. sem hér er til umræðu yrði samþykkt og gert að lögum en fulltrúar stjórnarflokkanna, þrír að tölu, þ.e. fulltrúar Framsfl. og fulltrúi Alþfl., lögðu til að málinu yrði vísað til ríkisstjórnarinnar.
Í lokaorðum nál. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. segir:
,,Nú hefur meiri hluti Alþingis samþykkt forsendur fjárlaga og þar með áðurgreint fyrirkomulag á innheimtu gjalds til Framkvæmdasjóðs aldraðra. Það breytir því ekki að þessi tilhögun er órökrétt og óhagkvæm í innheimtu. 1. minni hl. telur því rétt að nákvæm athugun fari fram á álagningu þessa gjalds í framtíðinni og að niðurstöður þeirrar athugunar eigi að liggja fyrir eigi síðar en við 1. umr. fjárlaga fyrir árið 1991. 1. minni hl. nefndarinnar leggur því til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.`` Undir þetta rita fulltrúar Framsfl. og fulltrúi Alþfl.
Það sem hlýtur að vekja sérstaka athygli er að fulltrúi Alþb. kaus að standa utan við nál. og skilaði ekki sérstöku nál. Ekki hefur komið fram í umræðunum hér hvers vegna það er en gera verður ráð fyrir að hann hafi átt samráð við hæstv. fjmrh. um þá afstöðu sína að taka ekki afstöðu til þessa máls. Þegar síðan hæstv. utanrrh. kemur hér í ræðustól og lýsir því yfir að hann sé sammála þeirri niðurstöðu sem kemur fram í nál. 1. minni hl. um að vísa þessu máli til ríkisstjórnarinnar, með þeim orðum sem ég hef þegar lesið, hlýtur maður að þurfa að spyrja hæstv. fjmrh. að því hvernig hann muni líta á þetta mál, sem hér er til umræðu, verði því vísað til ríkisstjórnarinnar. Er það
sjálfgefið að það fari fram könnun á málinu sem leiði til þeirra breytinga, sem hæstv. utanrrh. vill sjá á þessu máli, að horfið verði frá beinum skatti, svokölluðum nefskatti, í Framkvæmdasjóð aldraðra? Eða hyggst hæstv. ráðherra ekki taka mark á skoðunum forvera síns, núv. hæstv. utanrrh. í þessu máli?
Að þessu er spurt vegna þess að ekki verður séð hver afstaða Alþb. er þar sem hv. þm. Ragnar Arnalds tók ekki þátt í afgreiðslu nefndarinnar og kaus að skrifa ekki nafn sitt á nál., hvorki 1. né 2. minni hl. nefndarinnar, né heldur að skila sérstöku nál.
Ég tel nauðsynlegt, herra forseti, að þessari umræðu ljúki ekki fyrr en hæstv. fjmrh. hefur sagt hér í skýru máli hvernig hann ætli að bregðast við verði tillaga 1. minni hl. fjh.- og viðskn. samþykkt. Hún gerir ráð fyrir því að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar með þeim rökstuðningi sem er í nál.
Sá rökstuðningur byggist á því að hér sé um óeðlilega framkvæmd að ræða og ,,verið að grafa undan framkvæmd staðgreiðslunnar sem hefur það að markmiði að sem flestir gjaldendur séu jafnan skuldlausir við ríkissjóð.`` --- Svo vitnað sé beint í nál.
Ég kýs, virðulegur forseti, að beina þessari spurningu beint til hæstv. fjmrh. í þeirri von að hann geri grein fyrir viðhorfum sínum og Alþb. sem ekki hafa fengist fram í þessari umræðu enda hefur það mikla þýðingu fyrir frekari umræðu þessa máls.