Tilraunastöðin á Reykhólum
Fimmtudaginn 26. apríl 1990


     Stefán Valgeirsson:
    Virðulegi forseti. Ég tala hér fyrir fyrirspurn sem var borin fram af varamanni mínum Jóhanni A. Jónssyni. Hún er svohljóðandi:
    ,,Hvaða lagaheimildir eru fyrir því að leggja niður starfsemi tilraunastöðvarinnar á Reykhólum, flytja fullvirðisrétt hennar og stöðu tilraunastjóra suður að Hesti í Borgarfirði og farga því fé sem þar hefur verið ræktað í áratugi?``
    Þessi aðgerð er nokkuð sérstæð. Hún er sérstæð vegna þess að á tveimur stöðum á landinu hefur verið reynt að rækta upp sérstaka hvíta ull. Annars vegar á Reykhólum og hins vegar á Skriðuklaustri. Á Skriðuklaustri er talað um að þurfi að farga fé á því svæði vegna riðuveiki. Á Hesti í Borgarfirði er garnaveiki. Það má því segja að öfugt sé farið að hlutunum í þessu efni.
    Ég hafði samband við Álafoss til þess að spyrjast fyrir um hvers virði þessi ull væri. Þeirra greinargerð er allt of löng til þess að lesa hana í þessum fyrirspurnatíma. En þeir segja m.a., með leyfi forseta:
    ,,Á Reykhólum náðist mjög góður árangur fyrir um það bil átta eða níu árum í ræktun á hreinhvítu fé sem laust er við eðlisgalla eins og gular og hvítar illhærur. Ullin af Reykhólafénu var óvenju hvít og gljáandi svo ætla má að þar verði komið úrvals hráefni til framleiðslu á hvítum vörum. Einn galli reyndist þó í þessari ull. Hann var sá að hún var töluvert grófari en íslenska ullin almennt. Þessir góðu eiginleikar virðast því hafa náðst á kostnað grófleikans.``
    En síðar kemur í ljós að þeir hafa náð tökum á þessu atriði og þetta er fyrsta flokks vara. Það kemur líka í ljós í þessu áliti Álafoss að ull er þannig hjá mörgum í landinu að það borgar sig ekki að taka við henni. Þeir telja að með ræktun þessarar ullar, og ef sá árangur kæmist til bænda, mundi það hækka verulega verð á ullinni. Af þessum ástæðum er þessi fyrirspurn hér tilkomin. (Forseti hringir.) Því miður er minn tími búinn en það þyrfti að ræða þetta mál, eins sérkennilegt og það er, á öðrum vettvangi en hægt er nú.