Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Nú vill forseti biðja hv. þm. að minnast ákvæða 31. gr. þingskapalaga þar sem segir: ,,Hvor um sig, fyrirspyrjandi og ráðherra, má ekki tala oftar en tvisvar, fyrirspyrjandi eigi lengur en tvær mínútur og ráðherra eigi lengur en fimm mínútur í senn. Öðrum þingmönnum er heimilt að gera stutta athugasemd.``
Nú hafa þrír hv. þm. þegar fengið að gera athugasemd og biðja nú allir aftur um orðið. Forseti getur ekki orðið við því. En hv. 7. þm. Norðurl. e. gerir örstutta athugasemd.