Málefni LÍN
Fimmtudaginn 26. apríl 1990


     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Virðulegi forseti. Eins og fram kom í máli hv. fyrirspyrjanda var það eitt af megináhersluatriðum Alþb. á síðasta kjörtímabili að tryggja að þær skerðingar á námslánum sem flokkssystkini fyrirspyrjanda beittu sér fyrir í menntmrn. yrðu afnumdar. Með hliðsjón af því var flutt hér þáltill. af mér og hv. þáv. þm. Steingrími J. Sigfússyni, núv. hæstv. landbrh., og fleiri þingmönnum Alþb. þar sem gert var ráð fyrir að þessar sérstöku skerðingar yrðu afnumdar.
    Það sem liggur fyrir í dag er það að þær hafa verið afnumdar að fullu. Þau fyrirheit sem gefin voru eru að fullu komin í framkvæmd. Það birtist m.a. í því að orðið hafa verulegar breytingar á tímanum að því er varðar lán til einstakra hópa námsmanna og mun ég nú nefna um það dæmi.
    Einstaklingur með eitt barn fær 66.966 kr. á mánuði. Það er hækkun um 13.436 kr. á mánuði og 120.925 kr. á námsári. Einstaklingur með tvö börn fær 80.360 kr. á mánuði. Það er hækkun um 20.143 kr. á mánuði og um 181.243 kr. á námsári. Hjón sem bæði eru í námi eiga rétt á að fá 107.146 kr. á mánuði. Það er hækkun um 17.929 kr. á mánuði og um 161.362 kr. á námsári. Hjón sem bæði eru í námi með eitt barn eiga rétt á að fá 133.933 kr. á mánuði. Það er hækkun um 26.872 kr. á mánuði og um 241.850 kr. á námsári. Hjón sem bæði eru í námi með tvö börn eiga rétt á að fá allt að 160.719 kr. á mánuði. Það er hækkun um 40.276 kr. á mánuði og um 362.486 kr. á ári. Ef ég tek hér einstætt foreldri með eitt barn á það rétt á að fá 80.360 kr. á mánuði. Það er hækkun um 17.908 kr. á mánuði og 161.169 kr. á námsári. Með öðrum orðum, þau fyrirheit sem gefin voru hafa að fullu verið efnd.
    Í því áliti sem hv. þm. vitnaði til frá 5. febr. 1989, að mig minnir, er komið inn á fimm þætti:
    Í fyrsta lagi að skerðingin verði unnin upp. Það hefur verið gert.
    Í öðru lagi að tekjuviðmiðun verði á námsárinu 1989--1990 50% í stað 35% eins og hún var. Þannig var það á því námsári.
    Í þriðja lagi að það verði undirbúin ný framfærslukönnun fyrir námsmenn á Íslandi og erlendis. Sú könnun er í undirbúningi í góðri samvinnu við námsmenn innan stjórnar LÍN.
    Í fjórða lagi var gert ráð fyrir sérstakri athugun á stöðu og rétti fyrsta árs nema. Sú athugun hefur farið fram og er reyndar í gangi enn í sérstakri nefnd sem vinnur að þessum málum undir forustu Björns Rúnars Guðmundssonar hagfræðings.
    Í fimmta lagi var gert ráð fyrir því í samkomulaginu að skipa sérstakar nefndir til að gera tillögur um lausn á fjármögnunarvanda Lánasjóðsins til frambúðar, um nýjan sjóð eða deild í Lánasjóðnum til að annast styrki, einkum til náms á síðari stigum háskólanáms, og að hve miklu leyti sé rétt að styðja óvenju kostnaðarsamt háskólanám erlendis á fyrsta námsstigi þegar slíkt nám er unnt að stunda á Íslandi.

    Í öllum þessum tillögum hefur verið unnið. Við öll þessi fyrirheit hefur verið staðið.