Málefni LÍN
Fimmtudaginn 26. apríl 1990


     Fyrirspyrjandi (Halldór Blöndal):
    Virðulegi forseti. Hæstv. menntmrh. talaði með þeim hætti að við höfum farið hér með ósannindi. Sannleikurinn er sá að hann var spurður að því hvert hefði verið efni samkomulags frá því í febrúar 1989 sem hann gerði við námsmenn og hverjar efndirnar hefðu orðið. Í athugasemdum sínum hér síðast minntist hann ekki einu einasta orði á þetta samkomulag og staðfesti með því það sem við vissum fyrir að hann hefur ekki staðið við samkomulagið við námsmenn.