Fyrirspyrjandi (Guðmundur Ágústsson):
Virðulegi forseti. Á árinu 1987 voru samþykkt lög um stofnun embættis umboðsmanns Alþingis. Sú lagasetning markaði viss tímamót og gerði almenningi kleift að leita til hlutlauss aðila vegna mála sem til meðferðar eru eða hafa verið hjá stjórnsýslunni. Nú bregður svo við að umboðsmaður hefur tekið fyrir mál aðila sem hafa orðið illa úti vegna gjaldþrots fyrirtækisins Ávöxtunar og lætur fara fram sjálfstæða og óháða rannsókn á meðferð þess máls hjá bankaeftirliti Seðlabankans. Kemst hann að þeirri niðurstöðu í langri og rökstuddri skýrslu að bankaeftirlitið hafi í verulegum atriðum vanrækt eftirlitshlutverk sitt. Stjórn Seðlabankans boðar til fundar af þessu tilefni og ályktar á þann veg að niðurstaða umboðsmanns sé að engu hafandi og á misskilningi byggð.
Á okkur þingmönnum hlýtur sú skylda að hvíla að taka þetta mál hér upp og krefja viðskrh. svara. Til hvers er að setja á stofn embætti umboðsmanns ef skýrslur hans og álit eru afgreidd með þessum hætti? Í mínum huga er afstaða stjórnar Seðlabankans ekki aðeins lítilsvirðing við umboðsmann heldur Alþingi sem hann heyrir undir.
Í þeirri fsp. sem ég legg fyrir viðskrh. á þskj. 875 er hæstv. viðskrh. einnig spurður um efnisatriði þessa leiðindamáls og hvort Seðlabankinn ætli að leita eftir samningum við þann stóra hóp sem tapaði háum fjárhæðum í gjaldþroti Ávöxtunar. Spurningarnar sem ég legg fyrir viðskrh. eru þannig, með leyfi forseta:
,,1. Er viðskrh. samþykkur áliti bankaráðs Seðlabankans að vísa eigi á bug niðurstöðu umboðsmanns Alþingis um störf bankaeftirlitsins að málefnum Ávöxtunar sf.?
2. Má búast við því að ráðherra láti fara fram sjálfstæða athugun á störfum bankaeftirlitsins í áðurgreindu máli? Mun viðskrh. á einhvern hátt beita sér fyrir því að Seðlabankinn reyni að semja við það fólk sem sannanlega hefur orðið fyrir stórfelldu tjóni sem a.m.k. að einhverju leyti má rekja til vanrækslu bankaeftirlitsins að dómi umboðsmanns?
3. Telur ráðherra að núverandi lög um verðbréfaviðskipti leggi fébótaábyrgð á Seðlabankann ef vítaverð vanræksla á sér stað af hálfu bankans við eftirlit með verðbréfasjóði sem verður gjaldþrota?``