Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Virðulegi forseti. Framhaldsdeildin verður væntanlega starfsrækt í Heyrnleysingjaskólanum næsta vetur vegna þess að ekki hafa verið aðstæður til að undirbúa það að við værum með nægilega marga táknmálstúlka til þess að geta dreift fólki á fleiri skóla. Þess vegna gerum við ráð fyrir því að það verði þannig næsta vetur. Ég vænti þess að út af fyrir sig svari þetta fyrirspurninni, sem sagt að gert hefur verið ráð fyrir því að Heyrnleysingjaskólinn taki að sér þetta verkefni, a.m.k. næsta vetur.
Ég vil aðeins segja síðan út af þessu máli almennt. Ég tel að nálgast beri þessi mál með þeim hætti að heyrnarlausir fái grunnþjálfun með sérstökum hætti á vegum heyrnleysingjaskóla á hvaða aldri sem hinir heyrnarlausu eru, hvort sem það eru börn á forskólaaldri eða grunnskólaaldri eða framhaldsskólaaldri. En í þeirri þjálfun beri að undirbúa það að þau geti orðið hæf til þess að taka þátt í almennu skóla- og atvinnulífi eftir því sem ýtrast er kostur. Þess vegna má ekki standa að ákvörðunum eða framkvæmdum í þessum málaflokki með reglustikuaðferðum. Það verður í raun og veru að búa til námsskrá fyrir hvern einstakling. Þetta gerum við reyndar þegar í mörgum skólum. Við búum til námsskrár fyrir skóla og við búum til námsskrár fyrir einstaka nemendur. En það á sérstaklega við í þessu efni að þar verður að búa til námsskrá fyrir viðkomandi einstakling að því er varðar grunnmenntun hans og síðar þjálfun eftir að hann kemur út í skóla og/eða atvinnulíf að einhverju leyti.
Í þessum efnum er fjarska margt vanbúið hjá okkur, og sérstaklega er skortur á táknmálstúlkum og kennurum sem kunna táknmál. Það er skortur á rannsóknum á táknmálinu og fleira og fleira mætti nefna í þeim efnum. En ég held að grundvallaratriðið sé það að menn reyni ekki í þessum málaflokki frekar en öðrum að framkvæma kenningar --- mér liggur við að segja kenninganna vegna, heldur skoði menn vandlega hug sinn í hverju tilviki.
Ég hef verið þeirrar skoðunar og er þeirrar skoðunar að það beri að ganga eins langt og mögulegt er varðandi blöndun í íslenska skólakerfið. En þeir sem eru þeirrar skoðunar eiga auðvitað um leið að segja, og það segi ég hér, það á ekki að framkvæma þetta af stífni, heldur á að skoða þetta varðandi hvern hóp fyrir sig af því að þessi aðferð, sem er út af fyrir sig bara vinnuaðferð, er ekki tæmandi eða rétt í öllum tilvikum. Ráðuneytið má ekki standa þannig að málum að í raun og veru séu mál framkvæmd af stífni. Það á að gera það af sveigjanleika af því að okkar hlutverk í menntmrn. í þessu efni er ekkert annað en það að reyna að tryggja að heyrnarlausir fái eins góða menntun og kostur er. Auðvitað þurfum við stuðning annarra ráðuneyta varðandi þessi mál almennt, en okkar hlutverk er ekkert annað en þetta, að reyna að stuðla að því að menntun heyrnarlausra sé eins góð og kostur er, hvort sem um er að ræða forskóla, grunnskóla, framhaldsskóla eða háskólastig.