Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Virðulegi forseti. Eins og ég gat um hér fyrr á þessum fyrirspurnafundi þá var reglum um námslán breytt nokkuð nýlega í þeim tilgangi að standa við gefin fyrirheit varðandi breytingar á framfærslugrunni námslána í samræmi við yfirlýsingar sem gefnar höfðu verið m.a. í tengslum við álit vinnuhóps um Lánasjóð ísl. námsmanna, sem skilaði áliti 25. febr. 1989. Eins og fram kom í svari mínu þá var að fullu staðið við þau fyrirheit sem gefin höfðu verið. Framfærslugrunnurinn er nú óskertur. Framfærslugrunnurinn er nú skv. lögum um Lánasjóð ísl. námsmanna, þ.e. svokölluð brúun 100% umframfjárþarfar. Það er auðvitað úrslitaatriði sem námsmenn hafa alltaf lagt megináherslu á í baráttu sinni á undanförnum árum og áratugum. Ég tel reyndar að það skipti námsmenn langmestu máli að framfærslugrunnurinn fái að vera í friði. Hann er hins vegar í stöðugri hættu vegna þess að lögin um Lánasjóðinn eru gölluð af því að ráðherrar geta þá og þá ákveðið að verðbæta námslánin ekki. Þess vegna má segja að kjör námsmanna séu í stöðugri hættu í hvert skipti sem verðlagsbreytingar verða vegna þess að það er ekki sjálfgert að þau hækki skv. þeim, eins og lögin eru nú.
Frá því að ég kom til starfa í menntmrn. hafa verið ákveðnar þrjár hækkanir á framfærslugrunni.
1. 7,5% hækkun 1. mars 1989.
2. 5% hækkun 1. sept. 1989.
3. 6,4% hækkun 1. sept. 1990.
Auk þessara breytinga sem eru umfram verðlagsbreytingar hafa eftirtaldar breytingar á námslánum átt sér stað: 1. mars 1989 3,3%, 1. júní 1989 7,1%, 1. sept. 1989 5%, 1. des. 1989 5,6% og núna 1. mars sl. var um að ræða sérstaka hækkun á framfærslugrunni upp á 4,3%.
Á árinu 1990 hækka veitt lán frá síðasta ári um 23% og milli áranna 1988 og 1989 hækkuðu veitt lán úr Lánasjóði ísl. námsmanna um 52%.
Í umræðunum fyrr í dag gerði ég grein fyrir þeim breytingum sem orðið hafa á kjörum námsmanna skv. þeim ákvörðunum sem teknar hafa verið. Það er ekki rétt hjá hv. 2. þm. Reykv. að hér hafi verið um að ræða töluleg dæmi út í loftið. Hér var um að ræða tölulega útreikninga frá Lánasjóði ísl. námsmanna, opinberar tölur frá þeim starfsmönnum sem þar starfa.
Það er einnig nauðsynlegt að nefna í þessu sambandi að á þessu ári er hlutfall Lánasjóðs ísl. námsmanna af ríkisútgjöldum hærra en það hefur nokkurn tímann áður verið. Það er einnig rétt að nefna það í tengslum við þessi mál að á sama tíma og við höfum orðið að horfast í augu við skerðingu kaupmáttar verkalauna hér í þessu landi þá hefur tekist að bæta kaupmátt námslána frá því sem ella hefði verið.
Hv. þm. spyr um þær breytingar sem ákveðnar voru á úthlutunarreglum Lánasjóðs ísl. námsmanna 29. mars. Þær breytingar snerta í raun og veru aðallega svokölluð aukalán, lán sem eru utan
framfærslugrunnsins og lán sem eru óverulegur hluti af heildarútgjöldum Lánasjóðs ísl. námsmanna. En heildarútgjöld sjóðsins eru á þessu ári um 4 milljarðar kr. Þannig að hér er verið að tala um lánsþætti og stuðningsþætti í starfsemi sjóðsins sem eru afar lítill hluti af starfsemi hans. Það sem hér er um að ræða er í fyrsta lagi breyting á bókakostnaði, að hlutfall bókakostnaðar fari úr 65% í 30% af grunnframfærslu, að framfærslustuðull námsmanna í heimahúsum lækkar, að sumarlánum verði breytt, og kem ég aðeins að því síðar, að helmingur af tekjum maka umfram framfærslu og allar tekjur umfram tvöfalda framfærslu námsmanns komi til frádráttar á láni til námsmanns, að 75% af tekjum námsmanns umfram framfærslu í leyfi komi til frádráttar í reiknuðu hámarksláni og að framfærslugrunnurinn hækki um 6,4%.
Við afgreiðslu þessa máls í stjórn Lánasjóðs ísl. námsmanna varð niðurstaðan sú að námsmennirnir féllust í raun og veru á síðasta liðinn, þ.e. hækkun framfærslugrunnsins, en neituðu auðvitað öllum hinum tillögunum. Auðvitað neituðu þeir öllum tillögunum vegna þess að þar var um að ræða breytingu frá reglum sem verið höfðu í gildi, lítils háttar breytingar þegar heildardæmi Lánasjóðsins er skoðað. Varðandi sumarlánin sérstaklega vil ég taka það fram að stjórn Lánasjóðsins og svokölluð vafamálanefnd mun fjalla þar um hvert tilvik fyrir sig, þar sem málin verða afgreidd sveigjanlega m.a. með hliðsjón af því hvort um er að ræða nám sem stendur allt árið, eins og algengt er, sérstaklega t.d. nám í flugvirkjun. Það verður höfð hliðsjón af því hver er staða námsmanna varðandi fjölskyldustærð, varðandi börn. Einnig verður höfð hliðsjón af því hvaða skuldbindingar námsmenn höfðu ákveðið hver fyrir sig, áður en þessar breytingar á sumarlánunum voru ákveðnar.
Auk þessa voru gerðar tillögur um vissar aðrar breytingar á námslánunum í stjórn Lánasjóðs ísl. námsmanna núna fyrir nokkrum vikum. Við féllum frá þeim breytingum til að koma til móts við sjónarmið námsmanna, sem voru fullgild, vegna þess að við höfðum lagt á það áherslu að ná eins góðu samkomulagi við þá og kostur er í þessari stöðu. Vandinn hefur hins vegar orðið sá, virðulegur
forseti, og hef ég senn lokið máli mínu, að námsmennirnir hafa treyst sér til að fallast á hækkanirnar á framfærslugrunninum, en þeir hafa ekki treyst sér til að fallast á málin að öðru leyti. Þess vegna urðum við að taka ákvarðanir um breytingar á námslánunum sem þýddu um leið heildarbreytingu og styrkingu á stöðu Lánasjóðsins í ár.
Ég vil nota þetta tækifæri og spyrja hv. 2. þm. Reykv.: Er hann með gagnrýni sinni hér að gera tillögu um aukið fé til Lánasjóðs ísl. námsmanna? Hann flutti engar slíkar tillögur í haust. Það var ríkisstjórnin og fjmrh. sem fluttu þær tillögur, hv. þm. engar. Hefur honum snúist hugur frá því hann var menntmrh., frá því hann var í stjórnarandstöðu hér í desember sl.?