Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Virðulegi forseti. Það er fróðlegt að heyra í þessum talsmönnum Sjálfstfl. í dag. Í fyrsta lagi er það gagnrýnt mjög harðlega að tekjutillitinu sé breytt. Það þýði það að verið sé að refsa mönnum fyrir að vinna. Ég spyr þá á móti: Hvernig hefði hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson leyst úr fjárhagsvanda Lánasjóðsins ef hann hefði verið í starfi menntmrh.? Hefði hann verið áfram með 35% tekjutillit og þar með í rauninni skert framfærslugrunninn enn meira en forverar hans gerðu? Því þegar hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson fór úr menntmrn. þá lágu fyrir tillögur um bankavexti á námslánum. Ekki einasta hefur okkur tekist að tryggja það að framfærslugrunnurinn er að fullu tryggður í samræmi við lögin, heldur hefur líka tekist að koma í veg fyrir þær kröfur sem hafa heyrst, bæði í stjórnarandstöðu og í stjórnarliðinu sjálfu, að leggja bankavexti á námslánin. Ég hygg að það sé óhjákvæmilegt að vekja athygli á þessu.
Svo hitt að lokum, virðulegur forseti, að það skuli vera gagnrýnt að það séu gerðar ráðstafanir til að tryggja Lánasjóðinn á þessu ári þannig að hann geti staðið við skuldbindingar sínar skv. fjárlögum, frá sömu mönnum og aftur og aftur eru að ráðast á ríkisstjórnina fyrir það að ekki sé með nægilega traustum hætti haldið á fjárlögum og búskap íslenska ríkisins yfir höfuð. Sömu menn koma núna hingað og heimta það af menntmrh. að hann brjóti fjárlögin að þessu leytinu til. Nema menn séu með uppi í erminni aðrar tillögur. Hverjar eru þær, hv. þingmaður?