Birgir Ísl. Gunnarsson:
    Hæstv. forseti. Það er auðvitað skiljanlegt að þeir hæstv. ráðherrar Alþb. sem hér sitja og taka þátt í þessari umræðu kveinki sér undan því að það sé verið að rifja upp þau stóru orð sem þeir sögðu, bæði hér á Alþingi og í Háskólanum fyrir síðustu kosningar. Það er ljóst að þeim hefur ekki tekist að standa við sín stóru orð. Þeir hafa tekið með annari hendinni miklu meira en þeir gefa með hinni.
    Það er auðvitað þetta sem er grundvöllur þess að við erum að rifja upp málefni Lánsjóðs ísl. námsmanna hér, að þessir hæstv. ráðherrar sem voru stóryrtir fyrir síðustu kosningar hafa ekki getað staðið við sín stóru orð. ( Menntmrh.: Þingmaðurinn meinar ekkert með þessu.) Annað er ósannindi sem báðir hæstv. ráðherrar segja hér. Að tillögur hafi legið í menntmrn., eins og hæstv. ráðherra Steingrímur J. Sigfússon segir, til þess að rústa lánakerfi Lánasjóðs ísl. námsmanna --- og með fullum bankavöxtum, segir hæstv. menntmrh., þetta veit hæstv. ráðherra að er ósatt. Það er mjög alvarlegt að tveir hæstv. ráðherrar í ríkisstjórn Íslands skuli koma hér upp í ræðustól á hæstv. Alþingi og fara með vísvitandi ósannindi.
    Þessar tillögur liggja glöggt fyrir og ég veit það sjálfur að hæstv. ráðherra kynnti sér þær mjög rækilega. Hvergi í þeim tillögum var gert ráð fyrir fullum bankavöxtum á námslánum og því síður að það væri verið að rústa íslenska námslánakerfið. Það voru tillögur um að styrkja það stórkostlega, þannig að þessar smáskammtalækningar sem hæstv. menntmrh. er með duga skammt. Maður verður auðvitað að lýsa eftir tillögum hæstv. ráðherra á því hvernig hann ætlar að styrkja þennan lánasjóð til frambúðar. Við vitum að þessi sjóður er gjaldþrota en það bólar ekki á neinum tillögum frá hæstv. menntmrh. í þeim efnum.