Einar Kr. Guðfinnsson:
    Virðulegi forseti. Það verður auðvitað að virða hæstv. ráðherrum menntamála og landbúnaðar til betri vegar að greinilegt er að þeir hafa nokkurt samviskubit yfir meðferðinni á Lánasjóði ísl. námsmanna. Þetta eru menn sem fyrir síðustu kosningar og meðan þeir voru ekki í stjórnaraðstöðu töluðu fortakslaust um það að efla kjör Lánasjóðsins, bæta lánamöguleika námsmanna. Þá voru ekki neinar efasemdir um að til þess þyrfti efnahagsástandið að batna. Þá voru ekki neinar efasemdir um að þetta væri hægt á þeim grundvelli sem þá væri verið að byggja á. Nú er hins vegar allt í einu farið að tala um þetta eins og það sé hægt ef sjávaraflinn aukist, ef hagur landssjóðsins lagast, þá muni vera hægt að gera þetta.
    Nú er allt í einu verið að tala um þetta í einhverjum afsökunartóni, að ekki hafi verið hægt að standa við stóru orðin vegna þess að hagur ríkissjóðs hafi verið með þeim hætti að þetta hafi ekki verið hægt. Það gengur ekki, þrátt fyrir að hæstv. ráðherrar séu ákaflega fimir menn í pólitískum loftfimleikum, fyrir þá að koma hér og reyna að bera það á borð að skerðing á námslánum þýði einfaldlega það að námsmenn standi jafnkeikir eftir sem áður. Það liggur hér fyrir og er mat námsmannanna sjálfra, og á þeim brennur eldurinn, að um sé að ræða verulegar skerðingar, skerðingar sem eiga að skila 240 millj. á þessu ári, eða tæpum hálfum milljarði á tveimur árum. Mat námsfólks á þessum skerðingum liggur fyrir. Og hvað sem líður öllum pólitískum loftfimleikum hæstv. menntmrh. og hæstv. landbrh., sem reynir að ganga hér til liðs við hann, og er það vel að hjálpa lítilmagnanum, þá komast þeir ekkert upp með það. Skerðing upp á hálfan milljarð snertir auðvitað námsmenn.