Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):
Hæstv. forseti. Stofnun Fræðsluvarps í mars 1988 var aðgerð sem hafði verið undirbúin af sérstakri framkvæmdanefnd um fjarkennslu sem skipuð var til tveggja ára, frá 1. júlí 1987. Fjarkennsla með fræðsluvarpi nýtir nútímatækni til að mæta þörfum einstaklinga og atvinnulífs fyrir aukna menntun í breyttu þjóðfélagi.
Fræðsluvarpið vann að gerðum þátta fyrir grunnskóla, framhaldsskóla, fullorðinsfræðslu, endurmenntun og alþýðufræðslu. Þættirnir voru af margvíslegum toga og sumir hverjir kostaðir af stofnunum eða fyrirtækjum. Þetta var ekki síst vegna þess hve naumum fjárveitingum var varið til þessa mikilvæga verkefnis. Framkvæmdanefnd um fjarkennslu var úthlutað til þessa verkefnis liðlega 6 millj. kr. á fjárlögum 1988. Fjárbeiðni nefndarinnar fyrir árið 1989 nam samtals 31,66 millj. kr. en í fjárlagafrv. var gert ráð fyrir 7,1 millj. eða um fjórðungi af þörf nefndarinnar. Fjárlagabeiðni fyrir árið 1990 var 38,9 millj. kr. en fjárveiting var 8,4 millj. kr.
Ég hygg að fræðsluvarpið hafi þurft að greiða ríkissjónvarpinu meira en helming af þessum fjárveitingum sínum í útsendingarkostnað. Reyndin varð svo sú að dagskrá fræðsluvarps var oftast send út síðdegis á virkum dögum, á þeim tíma sem flestir eru í vinnu eða á leið úr henni. Ef tæki væru almennt til í skólum væri þó að sjálfsögðu hægt að nýta slíkan útsendingartíma víða í skólunum. Niðurstaðan virðist þó hafa orðið sú að allt of naumar fjárveitingar
og skortur á stuðningi og tengslum við menntakerfið og ríkissjónvarpið og útvarpið og einnig skortur á eftirfylgju af hálfu stjórnvalda reyndust of erfiðir tálmar þegar þessi mikilvæga starfsemi var að komast á laggirnar. Þess vegna hef ég spurt hæstv. menntmrh.:
,,1. Hvers vegna var fræðsluvarpið lagt niður?
2. Til hvers verður sú fjárveiting notuð sem fræðsluvarpi var ætluð á síðustu fjárlögum, að upphæð 8,4 millj. kr.?
3. Hvers vegna var skipuð ný framkvæmdanefnd um fjarkennslu? Hvert er hlutverk hennar?
4. Hyggst menntmrh. beita sér fyrir því að fræðsluvarp eða eitthvert annað form á fjarkennslu verði tekið upp aftur? Ef svo er, þá hvenær?``