Frsm. utanrmn. (Jóhann Einvarðsson):
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. utanrmn. um till. til þál. um fullgildingu Evrópusamnings um varnir gegn pyndingum og ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu sem er 455. mál þingsins. Á þskj. 1000 er svohljóðandi nál. frá utanrmn.:
    ,,Nefndin hefur fjallað um tillöguna og leggur til að hún verði samþykkt.``
    Undir þetta skrifa allir meðlimir utanrmn.